Fótbolti

Systurnar saman í byrjunar­liði Ís­lands

Andri Broddason skrifar
Hlín Eiríksdóttir er í byrjunarliðinu ásamt systur sinni Örnu.
Hlín Eiríksdóttir er í byrjunarliðinu ásamt systur sinni Örnu. Anton/Vísir

Ísland mætir Króatíu í kvöld í fyrri leik umspilsviðureignar um að komast á HM í Brasilíu næsta sumar. Systurnar Hlín og Arna Eiríksdætur eru báðar í byrjunarliði Íslands.

Þorsteinn Halldórsson hefur valið byrjunarliðið fyrir leikinn í kvöld gegn Króatíu og er byrjunarliðið nokkuð eins og búist var við. Vörnin er þétt skipuð þar sem með Glódísi Perlu Viggósdóttur og Guðrúnu Arnardóttir sem hafa lengi skipað kjarnann í vörn Íslands.

Arna Eiríksdóttir kemur í bakvörðinn ásamt Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur sem verður hinum megin. Arna er einnig vön því að spila miðvörð og er því aðeins varnarsinnaðri en Hafrún Rakel getur keyrt upp kantinn.

Á miðjunni verða Alexandra Jóhannsdóttir, Hildur Antonsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Þær hafa lengi vel staðið vaktina á miðju liðsins og er mikilvægt að hafa slíka reynslu þar gegn Króatíu.

Á köntunum hefur Þorsteinn teflt fram tveimur af okkar sterkustu leikmönnum sem eru að spila í atvinnumennsku á háu stigi. Thelma Karen Pálmadóttir er búin að spila vel í Svíþjóð og sömuleiðis hefur Sveindís Jane Jónsdóttir spilað vel í Bandaríkjunum. Mikilvægt er að Sveindís Jane haldist heil í landsleikjunum þar sem liðið þarf á henni að halda.

Sú sem leiðir framlínuna verður Hlín Eiríksdóttir og má búast við að hún sinni mikilli vinnu og munu króatísku varnarmennirnir eiga í erfiðleikum með að dekka hana.

Byrjunarlið Íslands:

  • Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Markmaður
  • Glódís Perla Viggósdótttir – Miðvörður

  • Guðrún Arnardóttir - Miðvörður

  • Hafrún Rakel Halldórsdóttir – Bakvörður

  • Arna Eiríksdóttir – Bakvörður

  • Alexandra Jóhannsdóttir - Miðjumaður

  • Hildur Antonsdóttir - Miðjumaður

  • Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – Miðjumaður

  • Thelma Karen Pálmadóttir - Kantmaður

  • Sveindís Jane Jónsdóttir – Kantmaður

  • Hlín Eiríksdóttir - Sókn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×