Skoðun

Það gengur svo vel hjá okkur!

Kristján Freyr Halldórsson skrifar

Ég var svo heppinn að hafa unnið að herferð sem sneri að þjóðarátaki fyrir endurhæfingarmiðstöðina að Reykjalundi í Mosfellsbæ á dögunum. Endurhæfum Reykjalund var yfirskriftin og var einfaldur snúningur á því hvernig þverskurður þjóðar, sem sækir Reykjalund heim, þiggur endurhæfingu eftir áföll hvers konar eða langvinn veikindi - en nú þurftum við þjóðin að snúa taflinu og endurhæfa Reykjalund. Stór landssöfnun átti sér stað í beinni útsendingu í sjónvarpi og við aðstandendur erum full þakklætis og djúpri virðingu gagnvart þjóðinni sem sýndi enn og aftur samtakamátt sinn í verki. Takk!

Það sem þó skyggir á þetta allt saman er hversu öfugsnúinn mér finnst svona gjörningur. Er bara eðlilegt að við séum sífellt að leita til þjóðarinnar, fjölskyldufólks um allt land og óska eftir fjárframlagi til þess að halda jafn mikilvægum stofnunum á floti? Kvennaathvarfi, slysavörnum, hjálparsamtökum. Reykjalundur er verulega mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hvers vegna er þetta ekki partur af kerfinu, á fjárlögum frá ríkinu. Ætlum við bara alltaf að treysta á framlög frá heimilum landsins til að tryggja svona hlutum framhaldslíf? Alltaf skal álíka mikilvægir hlekkir liggja á hakanum þar til við fólkið í landinu tökum þátt í þjóðarátaki. Við kaupum flugelda til að fjármagna hjálparsveitir landsins.

Endurhæfing og uppbygging



Gengur okkur svona vel? Mér finnst eins og það sé ekki langt síðan að meirihluti þjóðar, í þjóðaratkvæðagreiðslu, hafi kallað í kór að hér væri allt eins og það ætti að vera. Við getum gert þetta sjálf og hér gangi allt svo vel. Ég er þá ekki að tala um Evrópu í þessu samhengi, ég er bara að spyrja hvort okkur gangi virkilega vel? Hvernig gengur okkur fjölskyldum í landinu að sækja heilbrigðiskerfið? Hvar stöndum við í geðheilbrigðismálum? Eru samgöngur mannsæmandi? Menntakerfið? Umönnun aldraðra? Hvar gengur okkur vel? Er það í útgerðinni eða í mótvægisaðgerðum til landbúnaðarins?

Jæja, núna er þetta orðið leiðinlegt þras, Kristján! En til að bíta höfuðið af skömminni þá verð ég að nefna hræsnina í mér sjálfum að lokum. Við fyrrgreint þjóðarátak þá talaði ég við fjölda tónlistarfólks sem lagði allt málefninu lið án þess að þiggja krónu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslenskt tónlistarfólk sýnir álíka samhug í verki - og mögulega ekki í síðasta sinn (ef ekki er greitt fyrir framkomuna, þá ættum við að koma á fót sérstöku skattaafsláttakerfi).

Alltaf mæta þau fyrst á staðinn og leggja hendur á plóg. Á sama tíma sem okkur finnst sjálfsagt, að greiða ekki fólkinu fyrir sína framkomu, þá erum við þjóðin endalaust að skammast yfir fólkinu okkar í menningunni. Þau skuli þiggja verkefnastyrki, við höggvum í grunnstoðirnar, Tónlistarmiðstöð, aðstöðu til æfinga og tónleikahalds - einmitt á meðan íslensk tónlist ber hve hæst hróður lands og þjóðar.

Við viljum í raun alltaf bara þiggja. Ekki byggja. Upp.

Höfundur er tónlistarmaður og verkefnastjóri.




Skoðun

Sjá meira


×