Skoðun

Mjúkt net og snjallrassar

Unnar Geir Unnarsson skrifar

Láttu ekki snjallrassinn í vasanum stjórna þér.

Finnst þér stundum eins og stafræni heimurinn sé farin að stjórna þér? Að síminn grípi athygli þína áður en þú nærð að klára heila hugsun? Að samfélagsmiðlarnir ráði hvað birtist á skjánum hjá þér? Að auglýsendur virðist vita meira um þig en þú hefur nokkurn tíma gefið upp?

Flest þekkjum við þessa tilfinningu.

Við lifum í heimi þar sem stafrænir miðlar eru orðnir órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar. Þeir auðvelda samskipti og opna aðgang að upplýsingum, en þeir gleypa líka athyglina og móta hegðun okkar og neyslu.

Það er ekkert endilega rangt eða vont við það. En við ættum að vita hvernig þetta virkar, því þegar við skiljum ekki umhverfið sem við notum á hverjum degi er hætt við að það fari að stjórna okkur án þess að við tökum eftir því.

Þegar talað er um miðlalæsi hugsa mörg um falsfréttir eða netöryggi. En miðlalæsi snýst ekki síður um að skilja hver birtir efnið sem við sjáum, hvers vegna ákveðið efni birtist okkur og hvernig persónuupplýsingar okkar eru nýttar.

Á Borgarbókasafninu mætum við reglulega fólki sem leitar aðstoðar við allt frá stillingum snjalltækja og rafrænum skilríkjum til persónuverndar og öryggis á netinu. Sú reynsla sýnir að þetta er ekki sérhæft áhugamál fárra heldur færni sem skiptir fólk á öllum aldri máli.

Þess vegna hefur Borgarbókasafnið hrundið af stað verkefninu Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi.

Markmiðið er ekki að telja fólki trú um að snjallsímar eða samfélagsmiðlar séu vandamálið. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem hægt er að ræða áhrif tækninnar á daglegt líf og taka upplýstar ákvarðanir um eigin notkun.

Sem ákveðinn upptaktur að Miðlalæsisviku síðar í mánuðinum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fullorðna. Fjallað verður um persónuvernd, gagnasöfnun, stafrænt öryggi og miðlanotkun með samtali, sköpun og samvinnu.

Þá taka við reglulegir viðburðir, meðal annars vikuleg smiðja þar sem þátttakendur sauma Faraday-símasvefnpoka sem loka á net- og símasamband. Það er kannski óvenjuleg leið til að ræða tæknina, en markmiðið er að skapa rými fyrir samtal um stöðuga tengingu, athygli okkar og hvort það sé sjálfgefið að vera alltaf aðgengileg. Kannski þurfum við ekki að vera sítengd allan sólarhringinn.

Bókasöfn eru ekki staður til geyma bækur. Þau eru staðir þar sem fólk les bækur og tekur þær heim, hittist, lærir, skapar og skiptist á hugmyndum. Þess vegna eiga bókasöfn líka erindi í umræðu um stafrænt líf.

Við höfum ekki öll svörin. En við getum boðið upp á stað þar sem fólk getur komið saman, spurt spurninga og deilt reynslu sinni. Stað þar sem enginn þarf að vera sérfræðingur. Stað þar sem má segja: „Ég skil þetta ekki.“ Stað þar sem fólk hittist augliti til auglitis.

Tæknin er ekki náttúrulögmál. Við getum haft áhrif á hvernig hún er notuð og hvaða hlutverki hún gegnir í samfélaginu. Ekki láta snjallrassinn í vasanum stjórna þér, því þótt síminn sé snjall þýðir það ekki að þú sért það ekki líka. Komdu frekar á bókasafnið, taktu þátt í samtalinu og skoðaðu með okkur hvernig við getum byggt upp meðvitaðra, gagnrýnna og mannlegra stafrænt samfélag. Þar sem tæknin þjónar fólki, en ekki öfugt.

Höfundur er deildarstjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×