Innherji

Ó­breyttur tónn bankans og vonir um frið á vinnu­markaði lækkar markaðs­vexti

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri en ákvörðun peningastefnunefndar í þetta sinn var stutt af öllum fimm nefndarmönnum hennar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri en ákvörðun peningastefnunefndar í þetta sinn var stutt af öllum fimm nefndarmönnum hennar. Vísir/Einar

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda vöxtum óbreyttum, stutt af öllum nefndarmönnum, var viðbúin og engar breytingar voru gerðar á framsýnni leiðsögn hennar. Skömmu áður hafði náðst samkomulag hjá stórum hluta launþegahreyfingarinnar við SA um að slíta ekki kjarasamningum og hafa skuldabréfafjárfestar tekið vel í þær fréttir og markaðsvextir óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað.

Í stuttri yfirlýsingu peningastefnunefndar í morgun, hún taldi 165 orð en var 211 orð við ákvörðun nefndarinnar í ágúst, kom fram að meginvextir Seðlabankans yrðu áfram átta prósent – þeir höfðu áður verið hækkaðir á síðustu þremur fundum – og vísað til þess að verðbólgan hefði aukist í sumar „eins og búist var við.“

Allir greinendur og hagfræðingar höfðu spáð fyrir um óbreytta vexti og var ákvörðun peningastefnunefndar í þetta sinn stutt af öllum fimm nefndarmönnum hennar. Tólf mánaða verðbólgan mælist núna 5,9 prósent og hefur ekki verið meiri í tvö ár.

„Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega fjögur prósent um nokkra hríð,“ sagði í yfirlýsingu peningastefnunefndar.

Engin Peningamál og ný uppfærð þjóðhagsspá Seðlabankans fylgdi með vaxtaákvörðuninni í þetta sinn, en það verður næst þegar peningastefnunefndin kemur saman í síðasta sinn á árinu þann 18. nóvember næstkomandi.

Fáeinum klukkutímum áður en peningastefnunefndin tilkynnti fyrirsjáanlega um óbreytta vexti, ásamt yfirlýsingu sem var með fremur mildum tón um framhaldið, höfðu borist fréttir af því í gærkvöldi að breiðfylking stéttarfélaga – Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn – og Samtök atvinnulífsins hefðu náð saman um að koma í veg fyrir að kjarasamningum yrði slitið. Enn er hins vegar óvissa hver verður ákvörðun VR, Fagfélaganna og LÍV.

Skuldabréfafjárfestar brugðust nokkuð vel við tíðindunum þegar Kauphöllin opnaði í morgun og ávöxtunarkrafa óverðtryggðra stuttra ríkisbréfa, eins og RB27, RB28 og RB31, lækkaði nokkuð. Þegar krafa skuldabréfa lækkar þá hækkar verð bréfanna, og svo öfugt. Lítilleg hækkun hefur orðið á sama tíma á ávöxtunarkröfu verðtryggðra ríkisskuldabréfa og því hefur verðbólguálagið – munur á kröfu verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa – lækkað sem því nemur.

Þótt peningastefnunefndin undirstriki það í yfirlýsingu sinni að „greinilega“ sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum bendir hún á að mæld og undirliggjandi verðbólga er enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. „Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.“

Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar.

Framsýn leiðsögn nefndarinnar í yfirlýsingunni er haldið óbreyttri frá því fundinum í ágúst.

Í ljósi óvissu og þrálátrar verðbólgu og verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. „Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“


Tengdar fréttir

Framlengja samninga út næsta ár

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld.

Óttast „harða lendingu“ með efna­hags­sam­drætti og veru­legu at­vinnu­leysi

Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×