Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 19:28 Elín Klara Þorkelsdóttir er algjör lykilmaður í sænska meistaraliðinu Sävehof sem hún kveður svo næsta sumar þegar hún flytur til Danmerkur. Getty/Marijan Murat Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Sävehof í sigri í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Íslendingalið Gummersbach mætti Kiel í efstu deild karla í Þýskalandi og Börsungar unnu risasigur gegn Alicante. Fjöldi íslenskra handboltamanna var á ferðinni í dag.
Elín Klara skoraði átta mörk fyrir Sävehof úr ellefu skotum og átti stóran þátt í 31-27 útisigri gegn Hypo Niederösterreich í Austurríki. Þetta var fyrri leikur liðanna en þau mætast svo í Svíþjóð eftir viku og þá ræðst hvort þeirra kemst áfram í þriðju og síðustu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Þýska Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er hins vegar enn án sigurs í Meistaradeild Evrópu, eftir 33-31 tap á heimavelli gegn Podravka frá Króatíu. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk og Díana Dögg Magnúsdóttir eitt. Kiel sýndi mátt sinn í seinni hálfleik Í Þýskalandi urðu lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach að sætta sig við þriggja marka tap á útivelli gegn stórveldi Kiel, 29-26, eftir að hafa verið 15-13 yfir í hálfleik. Kiel náði forystunni, 19-18, þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og náði smám saman 3-4 marka forskoti sem liðið hélt út leikinn. Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk og var næstmarkahæstur í liði Gummersbach en Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason voru ekki á meðal markaskorara. Slóveninn Domen Makuc var markahæstur hjá Kiel með átta mörk. Gummersbach hafði unnið tvo síðustu deildarleiki en er núna með sjö stig eftir sjö leiki, í 9. sæti þýsku deildarinnar. Kiel er með 13 stig í 2. sæti, jafnmörg og Flensburg sem á leik til góða. Risasigur Börsunga án Viktors Barcelona vann risasigur gegn Alicante í spænsku úrvalsdeildinni, 46-31, þrátt fyrir að vera án landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar. Janus Daði Smárason skoraði tvö marka Barcelona í leiknum. Janus, Viktor og félagar höfðu þurft að sætta sig við silfurverðlaun á HM félagsliða í Egyptalandi á fimmtudaginn en möguleg ferðaþreyta kom ekki í veg fyrir risasigur þeirra og hafa spænsku meistararnir nú unnið fyrstu þrjá deildarleiki sína á tímabilinu. Donni með fimm í tapleik Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, var næstmarkahæstur hjá SAH sem tapaði 35-31 á útivelli gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni. Donni skoraði fimm mörk í leiknum en það dugði skammt. Rasmus Lauge var langmarkahæstur á vellinum með 13 mörk fyrir heimamenn. SAH er nú með 10 stig í 5. sæti en Bjerringbro-Silkeborg með stigi minna. Íslendingar fögnuðu sigri í Svíþjóð Í sænsku úrvalsdeildinni vann Íslendingaliðið Kristianstad 30-27 útisigur gegn Hallby. Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason skoruðu tvö mörk hvor og Einar Bragi Aðalsteinsson eitt en Ólafur Guðmundsson var ekki á meðal markaskorara.
Handbolti Þýski handboltinn Danski handboltinn Sænski handboltinn Spænski handboltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Sjá meira