Körfubolti

Meiri pressa á sterkara KR-liði

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir og Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir gengu í raðir KR fyrir tímabilið. Rebekka Rut Steingrímsdóttir framlengdi sinn samning.
Sara Rún Hinriksdóttir og Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir gengu í raðir KR fyrir tímabilið. Rebekka Rut Steingrímsdóttir framlengdi sinn samning. vísir/Sigurjón

KR var til umræðu í upphitunarþætti fyrir tímabilið í Bónus-deild kvenna í körfubolta í gærkvöld. Keppni hefst í deildinni í kvöld.

KR hefur bætt töluvert við sig og þar ber ef til vill helst viðbótin í landsliðskonunni Söru Rún Hinriksdóttur. KR hefur þá einnig bætt við sig sterkum erlendum leikmönnum og hefur þá ungan kjarna þess utan.

Klippa: KR-liðið sterkara en pressan meiri

Sérfræðingar þáttarins, Rúnar Ingi Erlingsson, Pálína Gunnlaugsdóttir og Helena Sverrisdóttir sammældust um að liðið sé sterkara en í ár en er þó undir töluvert meiri pressu en þá eftir leikmannakaup vetrarins.

Umræðuna um KR-liðið má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×