Innherji

Kólnandi hag­kerfi og háir vextir gætu reynt á við­náms­þrótt fjár­mála­kerfisins

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Fjármálastöðugleikanefnd bendir á að óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa hér landi ekki hækkað að sama marki eins og hefur sést erlendis og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Fjármálastöðugleikanefnd bendir á að óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa hér landi ekki hækkað að sama marki eins og hefur sést erlendis og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt. Vísir/Lýður

Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands undirstrikar að fjármálakerfið hér á landi sé traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun kemur fram að fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka esésterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.

Hún bendir hins vegar á að alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti. „Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafa aukist, langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt og skapað umrót á fjármálamörkuðum,“ segir í yfirlýsingunni.

Á Íslandi hefur ávöxtunarkrafa langra ríkisverðbréfa hérlendis hefur hins vegar lítið breyst.

„Óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa ekki hækkað að sama marki og gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt, meðal annars vegna mikils þjóðhagslegs sparnaðar og hóflegrar skuldsetningar þjóðarbúsins. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, að sögn Seðlabankans.

Fjármálastöðugleikanefnd bankans dregur fram að aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi hafi stutt við efnahag heimila síðustu árin. Þá hafa lánþegaskilyrði jafnframt styrkt viðnámsþrótt heimila, skuldahlutföll þeirra eru almennt lág og vanskil lítið.

„Skýr merki eru þó um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum. Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og sölutími lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum. Þessi þróun getur reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingu nefndarinnar.

Fram kemur í nýju riti Seðlabankans, Fjármálastöðugleika, að lánveitingar viðskiptabanka til byggingarstarfsemi hafi vaxið hratt og kerfisáhætta aukist. Vanskilahlutfall hefur sömuleiðis hækkað en fjárhagserfiðleikar eru „ekki útbreiddir enn sem komið er.“

Fjármálastöðugleikanefndin beinir einnig sjónum sínum að framþróun gervigreindar sem geti aukið hraða, umfang og flækjustig netárása.

„Brýnt er að aðilar á fjármálamarkaði efli varnir í takt við þróun netógna. Mikilvægt er að styrkja áfram viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum. Nú þegar er komin til framkvæmdar notkun greiðslukorta í netleysi sem er þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar.“

Þá ákváð fjármálastöðugleikanefnd að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Tekið er fram að nefndin muni sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.


Tengdar fréttir

Seðla­bankinn bætir í gjald­eyris­kaupin þegar evran fór undir 140 krónu múrinn

Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, meðal annars drifin áfram af góðum viðskiptakjörum í sumum útflutningsgreinum og innflæði í ríkisverðbréf, og í vikunni fór hún undir gildið 140 gagnvart evrunni í fyrsta sinn í fjögur ár. Seðlabankinn ákvað á sama tíma að bæta í reglubundin gjaldeyriskaup sín en segist samt telja að þau hafi „ekki teljandi áhrif“ á gengið við núverandi aðstæður.

Brýna stjórn­völd og Seðla­bankann að horfa meira á fram­boðs­hlið markaðarins

Stjórnendur fjárfestingafélagsins Langasjávar, sem er meðal annars umsvifamikið í verkefnum tengt byggingarstarfsemi, vara við því að langvarandi samdráttur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis geti leitt til vaxandi spennu á húsnæðismarkaði þegar vextir taka að lækka og eftirspurn eykst á ný. Þeir brýna fyrir stjórnvöldum og Seðlabankanum að horfa í auknum mæli til framboðshliðar markaðarins með því að stuðla að umhverfi sem ýti undir fjárfestingu og uppbyggingu.

Vara við lausafjárvanda verktaka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar

Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður.

Vara við skarpri lækkun og vertakar og lán­veit­endur ættu að „spenna beltin“

Byggingarverktakar og lánveitendur ættu „að spenna beltin“ núna þegar framundan er verðaðlögun að greiðslugetu kaupenda á fasteignamarkaði, einkum nýbyggingum, sem gæti komið fram í allt að 25 prósenta raunverðslækkun áður en botninn verður sleginn í markaðinn snemma árs 2027, að mati greinenda ACRO. Aðgengi almennings að verðtryggðum íbúðalánum hefur í seinni tíð ekki verið jafn þröngt og núna, það muni því augljóslega eitthvað láta undan þegar kaupgetan er ekki fyrir hendi á þeim verðum sem bjóðast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×