Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Andri Broddason skrifar 10. september 2026 09:03 Pochettino virðist vera enn svekktur yfir því að hafa ekki unnið neitt með Tottenham. vísir/getty Mauricio Pochettino, fyrrum þjálfari Tottenham, segir að liðið ætti að fá Englandsmeistaratitilinn árið 2017 eftir að Chelsea varð sektað fyrir að brjóta fjárhagsreglur deildarinnar. Tottenham endaði tímabilið í öðru sæti deildarinnar, sjö stigum frá Chelsea.
Í sumar var Chelsea sektað um tíu milljónir punda fyrir að brjóta fjárhagsreglur deildarinnar á meðan Roman Abramovich var eigandi félagsins. Félagið keypti leikmenn með ólögmætum hætti á árunum 2011 til 2018. Mauricio Pochettino var þjálfari Tottenham árið 2017 þegar félagið endaði í öðru sæti deildarinnar á eftir Chelsea. Hann segir í viðtali við The Athletic að eftir sektina hafi Tottenham átt að fá Englandsmeistaratitilinn sem Chelsea vann árið 2017. „Við hefðum átt að vinna einn titil, við hefðum átt að fá verðlaun. Ef það sem gerðist er satt þá hljótum við að eiga að vera meistarar það ár vegna þess að við vorum næstbesta liðið.“ Bestir í bæði vörn og sókn Tímabilið 2016-17 var gott hjá Tottenham og endaði liðið deildina með flest skoruð mörk og tapaði fæstum leikjum í deildinni. Það var þó ekki nóg að vinna Englandsmeistaratitilinn þar sem lærisveinar Antonio Conte hjá Chelsea voru með sjö stigum meira en Tottenham. Nýir eigendur tóku við Chelsea árið 2022 og við skoðun á bókhaldi félagsins fundu nýju eigendurnir að það gekk ekki upp. Eigendurnir ákváðu að tilkynna brotin og viðurkenndu 74 brot á reglum enska knattspyrnusambandsins. „Liðinu var refsað og það viðurkenndi verknaðinn. Titillinn ætti þá að fara til liðsins sem var í öðru sæti. Liðin spiluðu ekki eftir sömu reglum, ef við hefðum spilað eftir sömu reglum þá hefðum við keypt fleiri leikmenn og gert liðið betra. Ég er ekki að kvarta en þetta er sannleikurinn.“ Spilað með mismunandi reglum „Það væri ómögulegt ef sum lið spiluðu með rangstöðu og önnur ekki. Sömu reglur þurfa að gilda fyrir alla og þá getur besta liðið unnið.“ Svo virðist sem tímabilið sem Pochettino var þjálfari Tottenham sitji enn í honum en hann var látinn fara frá félaginu fyrir að vinna ekki neitt. Hann endaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar árið 2017 og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2019. Þar endaði Liverpool á að vinna leikinn 2-0 og var Pochettino rekinn á tímabilinu eftir það.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Chelsea FC Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira