„Ég er hræddur við þessa menn“ Árni Sæberg skrifar 9. september 2026 08:01 Mohamed Sayidali Ahmed gengur út úr réttarsal í hádegishléi. Í bakgrunni má sjá Kareem M. M. Abufarhah. Vísir/Anton Brink Brotaþoli í Höfðatorgsmálinu svokallaða segist hafa talið sig myndu deyja í kjölfar þess að ekið var á hann, hann barinn og stunginn í rasskinn. Hann segist hræddur við meinta árásarmenn og menn sem tengjast þeim. Hann hafi aðeins farið í bílakjallarann til að ræða við einn ákærðu á rólegu nótunum og hann hafi ekki vitað af vopnum sem meðreiðarsveinar hans höfðu með í för.
Aðalmeðferð í máli þriggja manna, þeirra Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed, hófst í gær en ekki tókst að klára hana. Þeim er gefið að sök að hafa reynt að svipta mann lífi í bílakjallaranum undir Höfðatorgi í mars síðastliðnum. Maðurinn sem þeir eru sagðir hafa reynt að svipta lífi mætti fyrir dóm í gær til þess að bera vitni að loknum skýrslutökum mannanna þriggja. Hann er 26 ára Íslendingur. Fór á fund Kareems vegna meints þjófnaðar Beðinn um að lýsa atburðum kvöldsins sagði hann að hann hefði mælt sér mót við áðurnefndan Kareem í bílakjallaranum „til þess að ræða eitt mál sem kom upp.“ Hann hefði fallist á að hitta Kareem í kjallaranum þar sem þar væru margar öryggismyndavélar og lögreglustöð í næsta nágrenni. Spurður nánar út í það hvernig hann þekkti til Kareems sagðist hann ekki þekkja hann neitt. Maður sem hefði unnið með honum einhverjum árum áður hefði sett sig í samband við hann og beðið hann um aðstoð, þar sem Kareem hefði stolið af honum fjármunum, nánar tiltekið 3,4 milljónum króna, sem hann hefði ætlað að senda fjölskyldu sinni erlendis. Hann hefði fallist á að ræða við Kareem og hefði talið að aðeins yrði um samtal að ræða, ekki slagsmál. Spurður að því hvers vegna hann hefði haft tvo menn með sér í viðræðurnar við Kareem sagði hann að það hefði verið fyrir tilviljun. Hann hefði verið niðri í bæ með mönnunum tveimur að drekka kaffi og þeir hefði komið með honum þaðan. Annar félaginn greinilega með kylfu Þá var myndband borið undir hann sem sýnir greinilega að einn annar félaga hans var vopnaður kylfu. Hann kvaðst sjá kylfuna á myndskeiðinu en sagðist ekki hafa vitað af því að félagi hans væri með kylfu. Einn verjenda sagðist þá greinilega sjá hinn félaga hans með einhvers konar sveðju, sem einn ákærðu hafði sömuleiðis borið um að hafa séð. Brotaþoli kvaðst ekki sjá neina sveðju og ekki hafa verið meðvitaður um að neitt slíkt hefði verið haft með í bílakjallarann. Í myndskeiðinu sést að brotaþoli er með hægri hönd í vasa peysu sinnar þegar hann gekk ofan í bílakjallarann. Einn verjenda spurði hann hvort hann hefði verið með nokkuð í vasanum. Hann sagði svo ekki hafa verið. Fimmtán til tuttugu manna hópur hafi mætt honum Þegar í bílakjallarann var komið hefði hann leitað að Kareem og loks fundið hann á neðstu hæð hans ásamt fimmtán til tuttugu manna hópi. Mennirnir hafi verið öskrandi á framandi tungumáli og haldið á alls kyns vopnum. Hann hefði þá tekið á rás og mennirnir elt hann. Hann hefði þá fundið bíl koma í bakið á sér og hann skotist áfram. Hann hefði náð að standa á fætur og hlaupa af stað á ný en skömmu seinna hefði bíl verið ekið á hann á miklum hraða og hann skotist upp í loftið. Þá hefði hann staðið upp á ný áður en hópurinn kom og hóf að berja hann með hinum ýmsu bareflum og reynt að stinga hann með hnífum. Loks hafi einum þeirra tekist að stinga hann af alefli í vinstri rasskinn. Alvarlegar afleiðingar Samkvæmt ákæru hlaut brotaþoli sár í húðbeði vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á vinstri beinhjótu á vinstra upphandleggsbeini, mar, bólgur og fleiðusár á vinstri ökkla og þreifeymsli á vinstri handlegg og kvið. Spurður að því hverjar afleiðingar árásarinnar væru sagði hann að þær væru mjög miklar. Hann væri til að mynda enn með mikla taugaverki í annarri höndinni og bæði hnén á honum væru ónýt. Hann gæti ekki gengið upp stiga án þess að finna fyrir því allan daginn. Þá hefði árásin haft áhrif á daglegt líf hans. Hann hefði átt fjóra áfanga eftir í iðnnámi, sem hann efaðist nú um að klára nokkurn tímann, hann hefði æft bardagaíþrótt af kappi en geri það ekki lengur og hann sæki þjónustu áfallateymis Landspítalans reglulega, þar sem árásin hafi haft slæm áhrif á andlega heilsu hans. „Ég þurfti að flytja úr íbúð sem mér líkaði vel við, ég get ekki farið í bílakjallara, mér líður illa þegar ég sé hvíta bíla. Ég er hræddur við þessa menn, hvað þeir gætu gert, hversu margir þeir eru, hversu margir þeirra eru lausir líka, ég er hræddur um að þeir komi heim til mín.“ Þá sagðist hann hafa verið viss um það að hann myndi láta lífið þegar hann lá á gólfi bílakjallarans í kjölfar árásarinnar. Raunar teldi hann það hreint kraftaverk að honum hafi tekist að koma sér af vettvangi og undir læknishendur.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira