Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar 8. september 2026 11:30 Á hverjum degi lesum við um erfiða atburði þar sem við reiðum okkur á fólk í framlínunni. Lögreglumenn stöðva bifreiðar á ofsahraða, slökkviliðs- og sjúkraflutningafólk vinnur við erfiðar björgunaraðgerðir, Landhelgisgæslan flytur fólk í öryggi og starfsfólk bráðamóttöku og barnaverndar tekur við þegar á reynir. Á bak við tjöldin situr jafnframt neyðarvörðurinn sem tekur fyrsta símtalið, metur stöðuna og tengir saman þá aðila sem þurfa að bregðast við og sjálfboðaliðar Landsbjargar og Rauða krossins eru oft eina úrræðið þar til aðrar bjargir berast sérslega ef við erum stödd á landsbyggðinni. Þetta fólk stendur vaktina fyrir okkur á hverjum degi – oft við aðstæður sem flest okkar munu sjaldan eða aldrei upplifa. Manneskjan er merkilega vel í stakk búin til að takast á við mikið álag. Við getum brugðist hratt við hættu, tekið ákvarðanir undir þrýstingi og haldið áfram þegar mikið liggur við. En endurtekið eða mikið álag getur skilið eftir sig spor. Erfiðar upplifanir geta haft áhrif á minni, athygli, streitukerfi og líkamsviðbrögð, jafnvel löngu eftir að hættan sjálf er liðin hjá. Þekking okkar á þessu hefur tekið miklum framförum. Nútímarannsóknir beina meðal annars sjónum að því hvernig heilinn vinnur stöðugt úr upplýsingum, nýtir fyrri reynslu og spáir fyrir um hvað gerist næst. Þetta svokallaða “spálíkan heilans” getur hjálpað okkur að skilja hvers vegna fortíðin getur stundum haldið áfram að móta upplifun okkar af núinu. Hugsum okkur færan skíðamann á 90 km hraða. Heilinn þarf stöðugt að lesa aðstæður fram undan, spá fyrir um næstu sekúndur og leiðrétta stefnuna eftir því sem nýjar upplýsingar berast. Heilbrigð aðlögun byggist einmitt á þessari getu: að uppfæra spána þegar aðstæður breytast. Eftir alvarlegt áfall getur kerfið hins vegar orðið of bundið við fyrri reynslu. Líkt og skíðamaður sem festist í djúpu, frosnu skíðafari getur heilinn haldið áfram að búast við hættu þótt umhverfið gefi ný og öruggari skilaboð. Markmið úrvinnslu er þá ekki að „eyða“ því sem gerðist, heldur að hjálpa heilanum að taka inn nýjar upplýsingar, endurmeta hættuna og finna aftur fleiri leiðir áfram. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli fyrir fólk sem vinnur í framlínu. Rannsóknir, bæði hér á landi og erlendis, hafa sýnt að viðbragðsaðilar eru í um það bil þrefaldri aukinni hættu á áfallatengdum einkennum og áfallastreituröskun. Það er ekki óvænt þegar tekið er tillit til þess hversu oft þau mæta aðstæðum sem fela í sér alvarleg slys, ofbeldi, ógn eða dauða. En aukin áhætta er ekki óumflýjanleg niðurstaða starfsins. Þar liggja einmitt tækifærin. Við getum byggt upp vinnustaði þar sem þekking á álagi er hluti af fagmennsku, þar sem samstarfsfólk kann að taka eftir breytingum hvert hjá öðru og þar sem eðlilegt er að leita stuðnings snemma. Við getum eflt félagastuðning, bætt viðbrögð eftir erfið atvik og kennt fólki að þekkja eigin streituviðbrögð áður en álagið verður yfirþyrmandi. Fyrsta skrefið er vitund. Næsta skref er þekking. Síðan þurfum við að breyta þekkingunni í framkvæmd. Að hlúa að fólkinu í framlínunni er ekki merki um að starfið sé of erfitt fyrir það. Það er hluti af því að byggja upp faglegt, öruggt og þrautseigt viðbragðskerfi. Höfundur er sálfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun