Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Smári Jökull Jónsson skrifar 9. september 2026 07:30 Árangur íslenskra stúlkna í stærðfræði hefur versnað umtalsvert samkvæmt nýjustu PISA-rannsókninni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Anton Brink Bilið á milli stúlkna og drengja í stærðfræði eykst samkvæmt niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar. Árangur stúlkna versnar umtalsvert á milli kannanna en stærðfræðin er það fag þar sem minnstu munar á árangri íslenskra nemenda og nemenda annarra OECD-ríkja.
Þegar árangurinn í PISA er greindur eftir kynjum má sjá að drengir standa stúlkum framar í stærðfræði en stúlkurnar eru með betri árangur í lesskilningi og eru sjónarmun framar í náttúruvísindum. Meðaltal OECD-ríkja í náttúruvísindum eru 482 stig en íslenskra nemenda 441 stig. Í þeirri grein hafa íslenskar stúlkur lækkað umtalsvert frá því í könnuninni árið 2022. Þá voru íslenskar stúlkur með 454 stig en eru nú með 443. Strákarnir standa hins vegar nánast í stað á milli kannanna. Stærðfræði Lesskilningur Náttúruvísindi Drengir á Íslandi Meðaltal drengja í OECD Stúlkur á Íslandi Meðaltal stúlkna í OECD Í stærðfræðinni standa íslenskir drengir sig betur en stúlkur, líkt og hjá öðrum Norðurlöndum og öðrum OECD-ríkjum. Stærðfræðin er einnig það fag þar sem minnstu munar á meðaltali Íslands annars vegar og meðaltali OECD-ríkja hins vegar. Stöndum verr en hin Norðurlöndin en fall þeirra hærra Staðan er verst í lesskilningi og í skýrslunni kemur fram að mikil breyting hafi orðið á frammistöðu bæði drengja og stúlkna frá árinu 2015. Nú er meðaltal íslenskra drengja í lesskilningshlutanum 408 stig en stúlkna 439. Báðir hópar standa sig umtalsvert verr en jafnaldrar á Norðurlöndum en aðeins rúmlega helmingur drengja á Íslandi nær grunnfærni í lesskilningi samkvæmt niðurstöðunum. Þó Ísland standi sig verr en hin Norðurlöndin í lesskilningi var fallið þó hærra hjá þeim öllum í ár. Danir, Norðmenn og Svíar raða sér allir á meðal þeirra átta þjóða þar sem munurinn er mestur á neikvæðan hátt og Finnar eru ekki langt undan. Svipuð þróun innan OECD Þróunin er í takt við það sem gerist annars staðar. Tyrkland er eina landið þar sem marktækur jákvæður munur er á frammistöðu í lesskilningi á milli ára og það aðeins hjá drengjum. Síðan 2015 hefur hlutfall nemenda meðal beggja kynja sem ná grunnhæfni eða afburðahæfni dregist saman og kynjamunur hefur minnkað. Árið 2015 töldust 84 prósent stúlkna ná grunnhæfni en í ár aðeins 62 prósent. Á sama tíma hefur þeim stúlkum sem teljast með afburðahæfni fækkað úr 9 prósentum og í 3 prósent. Á öllum Norðurlöndunum er munur á getu í lesskilningi stúlkum í vil og í öllum tilvikum marktækur. Stigamunur kynjanna á Íslandi er 31 stig, í Danmörku 30 stig en meðalstigamunurinn í OECD-ríkjunum er 30 stig.
Grunnskólar Skóla- og menntamál PISA-könnun Börn og uppeldi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira