Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2026 08:28 Innan við vika er nú til þingkosninga í Svíþjóð. Vísir/EPA Einn stjórnenda Svíþjóðardemókrata er farinn í leyfi eftir umfjöllun um að kærasta hefði um árabil dreift rússneskum áróðri. Vinstriflokkurinn hefur einnig úthýst nokkrum frambjóðendum sínum fyrir að mæra Rússlandsforseta og Hamas.
Innan við vika er nú í þingkosningar í Svíþjóð þar sem útlit er fyrir að hægristjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra falli. Svíþjóðardemókratar hafa varið minnihlutastjórn hans falli á þessu kjörtímabili en eru nú formlegur hluti af kosningabandalagi hægriflokkanna. Sænsku samtökin Expo greindi frá því í síðustu viku að Polina Malaberg, rússnesk kærasta Gustavs Gellerbrant, eins stjórnenda Svíþjóðardemókrata, hefði um árabil dreift rússneskum áróðri. Malaberg er jafnframt starfsmaður þingflokks Svíþjóðardemókrata. Hún er einnig sögð hafa tekið þátt í ferðum til Rússlands á vegum stjórnvalda í Kreml og ræktað tengsl við sænsk samtök sem tengjast rússneskum stjórnvöldum. Sérfræðingar sem Expo ræddi við sögðu að tengsl konunnar gætu talist öryggisógn. Gellerbrant, sem sér meðal annars um samskipti Svíþjóðardemókrata og ríkisstjórnarinar, hélt því fram að Expo hefði tekið samfélagsmiðlafærslur konunnar úr samhengi til þess að skapa tortryggni í garð hennar vegna þjóðernis hennar. Engu að síður ákvað hann að stíga til hliðar og fara í barnseignarleyfi. Kristersson forsætisráðherra sagði málið á ábyrgð Svíþjóðardemókrata en lýsti velþóknun sinni á þessari lausn. Magdalen Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins og hugsanlega verðandi forsætisráðherra, segir ásakanirnar grafalvarlegar enda væri Rússland stærsta ógn Svíþjóðar í viðtali við Politico. „Gætu upplýsingar sem varða þjóðaröryggi hafa verið í hættu?“ spyr hún og segir Kristersson verða að svara spurningum um öryggisbrest í ríkisstjórn hans. Hreinsanir á vinstri vængnum Á sama tíma greina sænskir fjölmiðlar frá því að Vinstriflokkurinn hafi tekið átta frambjóðendur af listum sínum um helgina. Hann hafði áður fjarlægt á þriðja tug frambjóðenda af listum. Maria Forsberg, formaður Vinstri flokksins, segir að frambjóðendurnir sem voru settir út af sakramentinu um helgina hafi deilt ýmis konar samsæriskenningum og deilt óviðeigandi færslum á samfélagsmiðlum. Blaðið Expressen segir að frambjóðendurnir hafi meðal annars lofað Vladímír Pútín, forseta Rússlands, Hamas-samtökin í Palestínu og deilt gyðingahatri. „Gyðingahatur og samræriskenningar eiga ekki heima í flokknum okkar og þess vegna verður enginn þeirra í framboði,“ segir Forsberg í skriflegu svari til sænska ríkisútvarpsins.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Rússland Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira