Innlent

Um­ferðar­slys við Víðidal

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hér má sjá gatnamótin inn Víðidal.
Hér má sjá gatnamótin inn Víðidal. vísir/vilhelm

Umferðarslys varð á Breiðaholtsbraut skammt frá Norðlingaholti við gatnamót inn í Víðidal rétt fyrir klukkan eitt. 

Töluverður viðbúnaður lögreglu er á svæðinu og hafa sírenur heyrst óma víða um borginni. Sést hefur til fjölmargra bifhjóla lögreglu bruna í átt að austurhluta borgarinnar.

Lokað hefur verið fyrir umferð á svæðinu tímabundið. Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað um afdrif þeirra sem lentu í umferðarslysinu né um hversu margar bifreiðir er að ræða.


Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is


Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×