Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Kristján Már Unnarsson skrifar 5. september 2026 21:10 Áhöfn Boeing 737 MAX-þotu Icelandair á flugvellinum í Narsarsuaq sumarið 2024. Icelandair flutti áætlunarflug sitt til suðurhluta Grænlands í vor til nýs flugvallar í Qaqortoq þegar Narsarsuaq var lokað. Icelandair Helsti tengiflugvöllur milli Grænlands og Íslands um áratugaskeið, flugvöllurinn í Narsarsuaq, er á leið með að öðlast framhaldslíf. Varnarmálaráðherra Danmerkur hefur óskað eftir samþykki fjárlaganefndar danska þingsins fyrir fjárveitingu sem tryggir lágmarksrekstur Narsarsuaq-flugvallar í ár og næsta ár.
Flugbrautinni í Narsarsuaq var lokað um miðjan aprílmánuð í vor og vellinum breytt í þyrlulendingarstað sama dag og nýr alþjóðaflugvöllur var opnaður við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis lauk nær allri þjónustustarfsemi í Narsarsuaq, þar með skólahaldi og hótelrekstri, enda var þetta 140 manna þorp nánast eingöngu til vegna flugvallarins. Í framhaldinu fluttist áætlunarflug Icelandair frá Narsarsuaq til Qaqortoq. Loftlínan milli flugvallanna er aðeins 55 kílómetrar. Þeir teljast báðir vera í hinni fornu Eystribyggð. Narsarsuaq-flugvöllur er djúpt inni í firði skammt frá Brattahlíð, landnámsjörð Eiríks rauða.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Um mitt sumar bárust óvænt fréttir af því að Naviair, hið danska Isavia, hefði sent út tilkynningu til flugmanna og flugrekenda um að flugbrautin í Narsarsuaq væri opin á ný. Engar skýringar fylgdu og þótti málið hið dularfyllsta. Áður hafði þó frést af því að fulltrúar frá Bandaríkjaher hefðu í vor skoðað Narsarsuaq-flugvöll í fylgd fulltrúa danska hersins og grænlensku landsstjórnarinnar. Viðræður voru þá hafnar milli fulltrúa landanna þriggja um aukna viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi. Horft á Narsarsuaq-flugvöll úr stjórnklefa flugmælingavélar Isavia. Myndin var tekin í september í fyrra þegar aðflugshallaljósin voru prófuð.Egill Aðalsteinsson Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus staðfesti í fréttatilkynningu í gærkvöldi að málið snúist einmitt um þetta; hvort Narsarsuaq með sinni 1.830 metra löngu flugbraut geti nýst sem herflugvöllur í framtíðinni. Fjárveitingu upp á 45 milljónir danskra króna, andvirði 850 milljóna íslenskra, fyrir árin 2026 og 2027, sé ætlað að halda flugvellinum opnum og koma í veg fyrir að mannvirki hans grotni niður. Tilgangurinn sé að gefa svigrúm meðan kannað er hvort danski herinn eða önnur bandalagsríki NATO geti notað Narsarsuaq til frambúðar. Grænlensku fréttamiðlarnir KNR og Sermitsiaq greindu báðir frá því í gær að fjármunirnir yrðu meðal annars nýttir til kyndingar húsa, eldsneytisafgreiðslu flugvéla, launa starfsmanna og holræsa. Frá Narsarsuaq-flugvelli síðastliðið sumar. Flugvél og þyrla Air Greenland á flughlaðinu.KMU Upphaflega var það Bandaríkjaher sem gerði flugvöllinn á árum síðari heimsstyrjaldar sem millilendingarstað fyrir herflugvélar á leið yfir Norður-Atlantshaf. Fyrir innrásina í Normandí var byggt þar stórt hersjúkrahús með 600 rúmum til að taka við særðum hermönnum úr bardaganum. Sjúkrahúsið, sem var í Blómadalnum inn af flugvellinum, var svo stækkað í 1.000 rúm í Kóreustríðinu. Þegar íslensku flugfélögin eignuðust millilandaflugvélar eftir stríð hófu þau fljótlega að sinna ýmsum verkefnum á Grænlandi, bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir. Þau flugu meðal annars fyrir dönsk stjórnvöld, bandaríska herinn og þjónuðu vísindaleiðöngrum. Um þetta er fjallað í þessu fjögurra mínútna myndskeiði úr þættinum Flugþjóðin á Sýn: Flugvöllurinn í Narsarsuaq er skammt frá Brattahlíð, landsnámsbæ Eiríks rauða í Eystribyggð. Þar er gróðursælasti hluti Grænlands og hefur flugvöllurinn lengi þjónað sem dyr að skoðunarferðum um hina fornu norrænu byggð. Því má kynnast í öðru fjögurra mínútna myndskeiði úr þætti Flugþjóðarinnar um Grænlandsflugið: Á safni í Narsarsuaq um sögu flugvallarins og herstöðvarinnar má meðal annars sjá gamlar ljósmyndir frá ískönnunarflugi, sem Flugfélag Íslands kom að. Það hófst eftir að 95 manns fórust með danska skipinu Hans Hedtoft þegar það sökk við suðurodda Grænlands í janúar 1959 eftir að hafa rekist á ísjaka. Þegar Bandaríkjaher yfirgaf herstöðina árið 1958 lokaði danska ríkið flugvellinum. Sjóslysið mannskæða varð hins vegar til þess að mönnum varð ljóst mikilvægi flugvallarins fyrir neyðar- og björgunarþjónustu. Hann varð þannig bækistöð íslenskra flugmanna í ískönnunarfluginu, eins og fræðast má um hér í þessu sex mínútna myndskeiði úr þættinum: Til að undirstrika endurnýjað mikilvægi Narsarsuaq efnir danski herinn til alþjóðlegrar heræfingar á svæðinu á næstu vikum, Arctic Shield, með þátttöku um fjögurhundruð hermanna frá tíu NATO-ríkjum. Næstkomandi miðvikudag, 9. september, hyggst varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus svo heimsækja Narsarsuaq ásamt Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands. Auk þess að fylgjast með heræfingunni munu ráðherrarnir halda borgarafundi í nærliggjandi byggðum um framtíð Narsarsuaq. Flugmælingavél Isavia í Narsarsuaq í byrjun september í fyrra eftir flugprófanir á aðflugsbúnaði.KMU Svæðið í kringum Narsarsuaq-flugvöll er skógi vaxið, eins og sjá má í þessari frétt frá árinu 2016: Meira um flugrekstur íslenskra flugfélaga á Grænlandi má sjá hér:
Grænland Flug Öryggis- og varnarmál NATO Danmörk Icelandair Bandaríkin Donald Trump Seinni heimsstyrjöldin Flugþjóðin Tengdar fréttir Icelandair hefur flug til Qaqortoq Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair. 5. júní 2026 11:44 Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur hafa fundað að minnsta kosti fimm sinnum á þessu ári til að ræða opnun þriggja nýrra herstöðva Bandaríkjahers á Grænlandi. BBC hefur eftir heimildarmönnum að viðræður gangi vel. 12. maí 2026 06:45 Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála. 15. apríl 2026 22:10 Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. 4. janúar 2025 22:11 Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira
Icelandair hefur flug til Qaqortoq Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair. 5. júní 2026 11:44
Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur hafa fundað að minnsta kosti fimm sinnum á þessu ári til að ræða opnun þriggja nýrra herstöðva Bandaríkjahers á Grænlandi. BBC hefur eftir heimildarmönnum að viðræður gangi vel. 12. maí 2026 06:45
Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála. 15. apríl 2026 22:10
Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. 4. janúar 2025 22:11