Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Agnar Már Másson skrifar 6. september 2026 13:19 Æfingin er haldin í ár á grundvelli 75 ára varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands. Bandaríkin sendu samt ekki herskip til Íslands til að taka þátt í æfingunni að sinni. (Á mynd er breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales frá æfingunni 2022) Vísir/Vilhelm Hvorki skip né þota frá Bandaríkjunum tók þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur, sem er hluti af Norður-Víkingi. Frá 2006 hafa Bandaríkjamenn leitt æfinguna en þátttaka þeirra var minni í ár en áður. Á næstu misserum stefna Bandaríkin á að draga úr herafla sínum í NATO-ríkjum í Evrópu. „Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir ofurstinn Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), í samtali við Vísi. Heræfingunni Norður-Víkingi, sem haldin er á og við Ísland annað hvert ár, lauk formlega á föstudag og lukkaðist vel að sögn utanríkisráðuneytisins. Á kafbátaleitaræfingunni var að sjá skip og þotur frá Íslandi, Belgíu, Þýskalandi, Kanada og Frakklandi sem eltust við kafbáta. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi leitt æfinguna frá 2006 – enda byggir hún á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna sem á 75 ára afmæli í ár – var bandarísk skip og loftför í fyrsta sinn hvergi að sjá á æfingunni. Trump ætlar að draga úr herafla Bandaríkjanna í Evrópu.AP/Alex Brandon Þetta er tilbreyting frá því sem tíðkast hefur í Norður-Víkingi; árið 2024 tóku til dæmis bandarísk landgönguskip með landgönguliðum og flugvélum þátt. O'Donnell ofursti kvaðst ekki geta svarað fyrir það hvers vegna Bandaríkjamenn væru ekki meðal þátttakenda og vísaði þeim spurningum á Bandaríkjastjórn. Þátttaka Bandaríkjamanna í NATO hefur farið minnkandi undanfarin misseri og ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum gaf út í sumar að hún myndi draga úr hernaðarlegu framlagi til NATO í Evrópu. Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006. „Sterkari Evrópa og sterkara NATO“ Bandaríkjamenn voru þó ekki fjarverandi með öllu, heldur tóku þeir þátt í öðrum smærri æfingum í kringum Norður-Víking; svokallaðar SeaBee-herdeildir reistu tjaldbúðir á Keflavíkurflugvelli, æfðu viðgerðir og tóku þátt í ýmsum æfingum með viðbragðsaðilum á Íslandi. Einnig æfðu þeir sig í því að lenda stórri C-130J Hercules-flugvél í erfiðum aðstæðum. Íslenskir sprengjusérfræðingar með bandarískum hermönnum við leit að sprengjum á gömlu æfingasvæði varnarliðsins við Fagradalsdjall á heræfingunni Norður-víkingur.Landhelgisgæslan „Bandaríkin voru enn mjög stór þátttakandi í þessu – þó með öðrum hætti – og ég held að það sýni í raun sterkari Evrópu núna og sterkara NATO, sem er einmitt stefnan sem NATO hefur tekið,“ segir O'Donnell, sem tekur fram að það sé ekki endilega óalgengt að lönd taki þátt í mismunandi æfingum hverju sinni. En kafbátaæfingin er engu að síður krúnudjásn Norður-Víkings og því er það tilbreyting að bandarísk herskip hafi ekki tekið þátt. Pakka saman í Evrópu Á sama tíma hafa Bandaríkin sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum. Listinn er liður í áætlunum Bandaríkjamanna um að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Utanríkisráðuneytið hefur ekki viljað veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara spurningalistanum. Þrátt fyrir fjarveru Bandaríkjamanna í kafbátaleitaræfingunni tilkynnti utanríkisráðuneytið á föstudag að varnaræfingin hefði lukkast vel. NATO Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Landhelgisgæslan Utanríkismál Donald Trump Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
„Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir ofurstinn Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), í samtali við Vísi. Heræfingunni Norður-Víkingi, sem haldin er á og við Ísland annað hvert ár, lauk formlega á föstudag og lukkaðist vel að sögn utanríkisráðuneytisins. Á kafbátaleitaræfingunni var að sjá skip og þotur frá Íslandi, Belgíu, Þýskalandi, Kanada og Frakklandi sem eltust við kafbáta. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi leitt æfinguna frá 2006 – enda byggir hún á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna sem á 75 ára afmæli í ár – var bandarísk skip og loftför í fyrsta sinn hvergi að sjá á æfingunni. Trump ætlar að draga úr herafla Bandaríkjanna í Evrópu.AP/Alex Brandon Þetta er tilbreyting frá því sem tíðkast hefur í Norður-Víkingi; árið 2024 tóku til dæmis bandarísk landgönguskip með landgönguliðum og flugvélum þátt. O'Donnell ofursti kvaðst ekki geta svarað fyrir það hvers vegna Bandaríkjamenn væru ekki meðal þátttakenda og vísaði þeim spurningum á Bandaríkjastjórn. Þátttaka Bandaríkjamanna í NATO hefur farið minnkandi undanfarin misseri og ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum gaf út í sumar að hún myndi draga úr hernaðarlegu framlagi til NATO í Evrópu. Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006. „Sterkari Evrópa og sterkara NATO“ Bandaríkjamenn voru þó ekki fjarverandi með öllu, heldur tóku þeir þátt í öðrum smærri æfingum í kringum Norður-Víking; svokallaðar SeaBee-herdeildir reistu tjaldbúðir á Keflavíkurflugvelli, æfðu viðgerðir og tóku þátt í ýmsum æfingum með viðbragðsaðilum á Íslandi. Einnig æfðu þeir sig í því að lenda stórri C-130J Hercules-flugvél í erfiðum aðstæðum. Íslenskir sprengjusérfræðingar með bandarískum hermönnum við leit að sprengjum á gömlu æfingasvæði varnarliðsins við Fagradalsdjall á heræfingunni Norður-víkingur.Landhelgisgæslan „Bandaríkin voru enn mjög stór þátttakandi í þessu – þó með öðrum hætti – og ég held að það sýni í raun sterkari Evrópu núna og sterkara NATO, sem er einmitt stefnan sem NATO hefur tekið,“ segir O'Donnell, sem tekur fram að það sé ekki endilega óalgengt að lönd taki þátt í mismunandi æfingum hverju sinni. En kafbátaæfingin er engu að síður krúnudjásn Norður-Víkings og því er það tilbreyting að bandarísk herskip hafi ekki tekið þátt. Pakka saman í Evrópu Á sama tíma hafa Bandaríkin sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum. Listinn er liður í áætlunum Bandaríkjamanna um að draga úr viðbúnaði í Evrópu. Utanríkisráðuneytið hefur ekki viljað veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara spurningalistanum. Þrátt fyrir fjarveru Bandaríkjamanna í kafbátaleitaræfingunni tilkynnti utanríkisráðuneytið á föstudag að varnaræfingin hefði lukkast vel.
Norðurvíkingur er reglubundin heræfing NATO sem haldin er annað hvert ár á og við Ísland. Æfingin snýst fyrst og fremst um kafbátaeftirlit og varnir á Norður-Atlantshafi, með áherslu á GIUK-hliðið (Grænland–Ísland–Bretland), sem er sú siglingaleið sem rússneskir kafbátar hafa notað til að komast úr höfnum á Kólaskaga út á opið Atlantshaf. Hún var fyrst haldin 2006.
NATO Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Landhelgisgæslan Utanríkismál Donald Trump Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira