Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Kristján Már Unnarsson skrifar 2. september 2026 19:24 Dagmar Ýr Stefánsdóttir er sveitarstjóri Múlaþings. Baðlónið Vök í baksýn. Egill Aðalsteinsson Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.
Áform ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr ellefu prósentum upp í 24 prósent sæta gagnrýni og sérstaklega á landsbyggðinni. Eitt baðlónanna, Vök, er rétt utan Egilsstaða í sveitarfélaginu Múlaþingi. Baðlónið Vök er fimm kílómetra norðan Egilsstaða.Egill Aðalsteinsson „Við höfum miklar áhyggjur af þessari fyrirhuguðu hækkun. Vegna þess að hún mun bíta okkur fastast sem erum á landsbyggðinni. Það er allt annað að reka baðlón á suðvesturhorninu heldur en það er hér í fámenninu fyrir austan,“ segir Dagmar Ýr. Ráðamenn Múlaþings óttast að skattahækkunin leiði til samdráttar í rekstri baðlónsins, eins og fram kemur hér í þessu sjónvarpsviðtali við sveitarstjórann: „Það yrði eiginlega bara enn eitt höggið fyrir okkur og við höfum miklar áhyggjur af því að Vök gæti farið að loka hluta úr ári. Þau hafa lýst því yfir. Eins hafa forsvarsmenn hér hjá Vök sagt að þetta muni verða til þess að þau dragi úr frekari umsvifum. Hér hafa verið plön um alls konar framkvæmdir og stækkanir og annað, en það er líklegt að það verði skrúfað fyrir það ef af þessu verður.“ -Finnst ykkur halla dálítið á landsbyggðina þegar kemur að skattastefnu þessarar ríkisstjórnar? „Já, við höfum kvartað svolítið yfir því. Það hefur hver landsbyggðarskatturinn rekið annan.“ Forystukonur ríkisstjórnarinnar. Vísir „Við náttúrulega vorum mjög ósátt við innviðagjald sem var sett á skemmtiferðaskip. Það var sem betur fer komið til móts við okkur og lækkað. En við erum að fara að verða fyrir miklu höggi hvað það varðar. Núna næstu tvö árin munum við finna fyrir fækkun, það er alveg ljóst. Og við höfum miklar áhyggjur af varðandi virðisaukaskatt sem er verið að setja á svokölluð leiðangursskip sem eru á hringsiglingum í kringum landið. Við erum að sjá bara alveg bara gjörbreytta stöðu þar sem að þau skip virðast bara ætla að hætta að koma til okkar,“ segir sveitarstjórinn en hafnirnar á Djúpavogi, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra eru innan Múlaþings. Hlutfall Íslendinga í hópi baðgesta er óvenju hátt í Vök.Egill Aðalsteinsson Vök hefur þá sérstöðu meðal íslenskra baðlóna að hlutfall íslenskra gesta er þar hærra en almennt gerist, eða um fjörutíu prósent. „Heimamenn eru mjög duglegir að kaupa sér árskort í böðin. Og kannski forðast svolítið að vera hérna á sumrin þegar mestur fjöldinn er og eru eiginlega að nýta þetta kannski enn meira yfir vetrartímann. Af því að hér er yndislegt að liggja í heitu vatni með stjörnubjartan himin og jafnvel norðurljós á veturna. Þannig að þetta er yndislegur staður fyrir okkur heimamenn að nýta allt árið um kring.“ Vök er sögð hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi.Egill Aðalsteinsson Sex ár eru frá því baðstaðurinn Vök var opnaður. „Hann bara gjörbylti ferðamannaiðnaðinum hér fyrir austan. Vegna þess að allt í einu vorum við bara komin með áfangastað sem að ekki var fyrir og var bara hreinlega búinn til. Við erum með mikið af fallegum náttúruperlum hérna í kring en það er mikilvægt að vera líka með einhverja svona afþreyingu sem að fólk getur farið og látið líða úr sér þegar það er búið að fara í göngutúrinn.“ -Er þetta blaut tuska í andlit ykkar? „Það má bara segja það,“ svarar Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Frá Sjóböðunum við Húsavík.skjáskot/Sýn
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Múlaþing Sundlaugar og baðlón Alþingi Byggðamál Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. 9. júlí 2026 08:37 Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52 Miklu meiri aðsókn í Vök en reiknað var með Um tvö hundruð þúsund gestir hafa heimsótt Vök baths við Egilsstaði frá því að staðurinn opnaði fyrir tæpum þremur árum. Það er miklu meiri aðsókn en eigendur staðarins þorðu nokkurn tímann að vona. Bjórinn á staðnum er bruggaður upp úr jarðhitavatni svæðisins. 8. ágúst 2022 21:06 Austfirðingar baða sig við kertaljós þegar dagar myrkurs fara í hönd Sameiginleg byggðahátíð Austfirðinga, Dagar myrkurs, hófst á Austurlandi í dag en hún stendur yfir næstu fimm daga. Í tilefni hennar var Stöð 2 í beinni útsendingu frá Fljótsdalshéraði. 30. október 2019 22:53 Bjóða gestum að baða sig í volgum vökum úti í vatni Framkvæmdir eru hafnar við nýjan baðstað í útjaðri Egilsstaða, sem fullyrt er að verði einstakur, en þar munu gestir upplifa það að baða sig í vökum úti í vatni. 12. júlí 2018 11:30 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. 9. júlí 2026 08:37
Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. 27. mars 2026 15:52
Miklu meiri aðsókn í Vök en reiknað var með Um tvö hundruð þúsund gestir hafa heimsótt Vök baths við Egilsstaði frá því að staðurinn opnaði fyrir tæpum þremur árum. Það er miklu meiri aðsókn en eigendur staðarins þorðu nokkurn tímann að vona. Bjórinn á staðnum er bruggaður upp úr jarðhitavatni svæðisins. 8. ágúst 2022 21:06
Austfirðingar baða sig við kertaljós þegar dagar myrkurs fara í hönd Sameiginleg byggðahátíð Austfirðinga, Dagar myrkurs, hófst á Austurlandi í dag en hún stendur yfir næstu fimm daga. Í tilefni hennar var Stöð 2 í beinni útsendingu frá Fljótsdalshéraði. 30. október 2019 22:53
Bjóða gestum að baða sig í volgum vökum úti í vatni Framkvæmdir eru hafnar við nýjan baðstað í útjaðri Egilsstaða, sem fullyrt er að verði einstakur, en þar munu gestir upplifa það að baða sig í vökum úti í vatni. 12. júlí 2018 11:30