Á morgun mega hommar gefa blóð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 17:22 Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur breytt reglugerðinni. Á morgun mega allir óháð kyni eða kynhneigð gefa blóð þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi. Sérstök skimun var innleidd hjá Blóðbankanum sem hafði gefið góða raun. „
Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni,“ er haft eftir Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í tilkynningu. Reglurnar eru í samræmi við álit ráðgjafanefndar um fagleg málefni blóðbankaþjónustu. Nefndin hefur að markmiði að tryggja sem best öryggi blóðþega með markvissri áhættugreiningu, einstaklingsbundnu áhættumati og NAT-skimun. Skimunin var innleidd fyrir rúmu ári og er skimað fyrir lifrarbólgu B og C og HIV-veirunni. Til þessa máttu samkynhneigðir karlmenn á Íslandi ekki gefa blóð þar sem meiri líkur voru á því að þeir væru smitaðir af HIV-veirunni. Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, fullyrti að samkynhneigðir karlar mættu gefa blóð þann 1. júlí 2025 en það reyndist ekki rétt heldur var einungis verið að innleiða áðurnefnda NAT-skimun. „Í fyrra voru innleidd næmari próf til að greina blóðborna smitsjúkdóma. Núna tökum við í notkun nýjan spurningalista fyrir blóðgjafa þar sem við tökum upp einstaklingsmiðað áhættumat, í stað eldri hópaviðmiðaðra skilmerkja. Allir blóðgjafar munu því framvegis svara sama spurningalistanum. Þetta er tímabær breyting og í samræmi við alþjóðlega þróun. Ég tel að við séum vel undirbúin undir þessar breytingar og ég vona að blóðgjafar verði sáttir við þær,” er haft eftir Þorbirni Jónssyni, yfirlækni Blóðbankans.
Blóðgjöf Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Hinsegin Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira