Tekjuáætlun verulega undir áætlun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 17:01 Ekki eins margir fara í Laugardalslaug líkt og áður. Vísir/Vilhelm Tekjuáætlun Laugardalslaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Vesturbæjarlaugar er tæpum fjörutíu milljónum króna undir áætlun. Afar mikil aðsókn er í eina laugina en illa gengur hjá hinum tveimur. Mögulega þarf að skerða enn meira aðgengi að Laugardalslaug.
Þetta kemur fram í minnisblaði frá Menningar- og íþróttaráði Reykjavíkurborgar. Loka þurfti heitum pottum í Laugardalslaug í lok júní vegna ástands stúkunnar og því hefur gestum fækkað til muna í lauginni. Í júlí var aðgangseyrir átján milljónum króna undir áætlun. Vel hafi gengið fyrri hluta árs en frá og með ágúst fer að gæta verulegra áhrifa lægri tekna. „Vegna óvissu með upphaf framkvæmda og lengd þeirra er ómögulegt að spá fyrir um framhaldið þar sem mögulega þarf að loka lauginni alfarið fyrir allt annað en skólasund og sundæfingar. Að minnsta kosti má gera ráð fyrir að lækkun aðgangseyris muni nema að lágmarki 20 m.kr. á mánuði á meðan skerðingu stendur og enn meira ef loka þarf lauginni,“ segir í minnisblaðinu. Þá er litið til Sundhallarinnar og hefur framkvæmdatími þar verið lengri en gert var ráð fyrir. Vegna þessa var lengri tíma með takmörkun á fjölda gesta. Fyrstu sex mánuði ársins var tekjutap tuttugu milljónir króna. Hins vegar hafi gengið betur í júlí og er talið að takmörkunin í Laugardalslaug hafi þar haft áhrif. Að lokum er litið til Vesturbæjarlaugar en þar hefur staðan verið mjög góð vegna mikillar aðsóknar allt árið. Ráðist var í umfangsmiklar úrbætur í lauginni á síðasta ári og voru tekjur fyrstu sjö mánuðina um tuttugu milljónum króna umfram áætlun. „Eftir að tekjuaukning í Vesturbæjarlaug er dregin frá tapi í Laugardalslaug og Sundhöll er nettó staða tekna fyrstu 8 mánuði ársins um 37 m. kr. undir tekjuáætlun í þessum laugum samanlagt.“
Reykjavík Borgarstjórn Sundlaugar og baðlón Rekstur hins opinbera Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira