Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Freyja Þórisdóttir skrifar 22. ágúst 2026 18:21 Málið er enn í rannsókn en lyfjafræðingar munu þurfa að taka saman hvaða lyfjum var stolið í nótt. Já.is Brotist var inn í Efstaleitisapótek í nótt en nágrannar vöknuðu við hávaða þegar jeppling var bakkað á rúðu í apótekinu með tilheyrandi látum. Engu var stolið nema lyfjum en talið er að tveir hafi verið að verki. Bíll þjófanna fannst skammt frá apótekinu en enn hefur ekki tekist að hafa uppi á þeim.
Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir myndbandsupptöku úr öryggismyndavélum apóteksins sýna tvo menn fara inn, beint að lyfjaskápnum, sópa þar að sér lyfjum og hlaupa út. Þjófnaðurinn hafi allt í allt tekið örfáar mínútur. Vaknað við hávaðann Þá hafi íbúar í nærliggjandi húsum tilkynnt innbrotið til lögreglunnar en þegar á staðinn var komið hafi þjófarnir verið farnir, bíllinn sem þeir hafi verið á hafi aftur á móti fundist stuttu frá apótekinu. Jóhann segir líkur á því að þeir hafi stolið bílnum áður en hann var nýttur við verknaðinn. Þá staðfestir hann að engu nema lyfjum hafi verið stolið en ekki liggi fyrir hvaða lyfjum vorru tekin úr skápnum eða hvert verðmæti þýfisins sé. Starfsfólk apóteksins vinni að því að skrá niður hverju hafi verið stolið úr lyfjaskápnum. Brotist inn í annað sinn Fyrr í sumar var greint frá því að brotist hefði verið inn í þetta sama apótek. Þá flúði innbrotsþjófurinn á Hopp-deilibíl og í kjölfarið hófst eftirför þar sem þjófurinn keyrði meðal annars yfir göngubrú. „Ók aðilinn hættulega eftir akbrautum og göngustígum en stöðvaði síðan för á göngustíg í Fossvogi. Reyndi hann þá að komast undan á fæti en var hann stöðvaður og handtekinn eftir stuttan spöl,“ kom fram í yfirliti lögreglu í kjölfar innbrotsins í júlí. Jóhann segir ekki útilokað að málin tengist en ítrekar að rannsókn vegna innbrotsins í nótt sé nýhafin og ekkert liggi fyrir sem bendi til þess að þau tengist. Rannsókn sé á algjöru upphafsstigi.
Lögreglumál Lyf Reykjavík Tengdar fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna yfirstandandi innbrots í apótek. Þegar komið var á vettvang var gerandinn farinn en sá sem tilkynnti hafði farið á eftir honum. 2. júlí 2026 07:03 Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira
Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna yfirstandandi innbrots í apótek. Þegar komið var á vettvang var gerandinn farinn en sá sem tilkynnti hafði farið á eftir honum. 2. júlí 2026 07:03
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13