Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 07:31 Þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti ákvörðun sína um þriðju vaxtahækkunina á þessu ári vísaði hún einkum í tvær orsakir þess að verðbólga hafi aukist. Orðrétt segir í yfirlýsingunni: „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum“. Svo mörg voru þau orð. Gerendur og fórnarlömb Eða svo mörg voru þau orð þar til komið var að því að svara spurningum á opnum fundi nefndarinnar, þá kvað við nýjan tón. Seðlabankastjóri brást við spurningu um vinnumarkað með því taka upp stríðsöxi og gera launafólk enn á ný að blóraböggli fyrir stöðu efnahagsmála. „Það eru engin fórnarlömb hér,“ sagði hann og beindi orðum sínum til verkalýðshreyfingarinnar. Svo bætti hann betur um í fjölmiðlaviðtali og talaði um aðila vinnumarkaðar sem „gerendur í málinu“. Það er óhætt að segja að hann hafi valið sér örlítið gildishlaðin orð til að tjá þá pólitísku sýn sína að launaskerðingar séu kjörin leiðin til að takast á við efnahagsvandann. Sætti launafólk sig við launafrystingar eða launalækkanir fái það lægri stýrivexti að launum. Þetta getur ekki klikkað! Eða hvað? Getur verið að þetta hafi verið reynt nú þegar? Í aðdraganda gildandi kjarasamninga sagði þessi sami Seðlabankastjóri að kjarasamningar væru „langstærsti óvissuþátturinn“ fyrir væntanlegt vaxtalækkunarferli. Forysta verkalýðshreyfingarinnar keypti þessi rök og beitti sér fyrir langtímasamningum með lágum launahækkunum í von um að verðbólga héldi áfram að ganga niður og stýrivextir fylgdu í kjölfarið. Þetta var í aðdraganda hinnar miklu snjóhengju þar sem fjöldi heimila sá fram á að missa fasta vexti á óverðtryggðum lánum og sitja uppi með stóraukna greiðslubyrði. Tækist að ná stýrivöxtum niður myndi það létta á endurfjármögnun, kannski gætu auknar afborganir almenns launafólks hlaupið á tugum þúsunda frekar en hundruðum. Það varð því miður ekki raunin. Óheppilegt upphlaup Illa hefur gengið að vinda ofan af hávaxtastefnunni og nú hafa stýrivextir tekið að hækka að nýju, á gildistíma þessara sömu kjarasamninga (hins áðurnefnda langstærsta óvissuþáttar). Enda kom í ljós – það sem var svo sem vitað – að kjarasamningbundin laun eru ekki helsti áhrifaþáttur verðbólgunnar, þvert á móti þá hafa drifkraftarnir undanfarin ár verið húsnæðismálin, hagnaðarsókn fyrirtækja og gjaldskrárhækkanir hins opinbera. Vandinn hefur að mestu verið heimatilbúinn og gerir erfiðara fyrir að bregðast í sameiningu við áhrifum að utan sem nú birtast vegna olíukrísunnar. Ekkert af þessum hækkunum – hús, olía, matvöruverð, gjaldskrár – er hægt að stöðva með háum stýrivöxtum og launaskerðingum. Jafnvel þótt launahækkanir núgildandi samninga hefðu staðið á núlli þá væri hér verðbólga og stýrivextir of háir sömuleiðis. Samt sem áður boðar Seðlabankastjóri sömu lausn og fyrir tveimur árum síðan, en eyðir engu púðri í að greina hvers vegna hún hefur ekki virkað hingað til og af hverju hún ætti að virka allt í einu núna. Upphlaup Seðlabankastjóra á opnum fundi peningastefnunefndar er ekki til þess fallið að stuðla að uppbyggilegu og gagnadrifnu samtali um þá stöðu sem er nú uppi í efnahagsmálum. Á opnum fundi VR, Fagfélaganna og LÍV, sem haldinn var á vaxtahækkunardegi Seðlabankans, kom einmitt vel fram hversu gallað tæki stýrivextir einir og sér eru til að takast á við verðbólguna. Ekki síst er mikilvægt að stuðla að samspili hinna ólíku handhafa ríkisfjármálanna, það er stjórnvalda og Seðlabankans, og þá með aðkomu aðila vinnumarkaðar. Ef þessu væri líkt við einhvers konar fjögurra dekkja bíl sem þarf að hjakkast í gang (stjórnvöld, Seðlabanki, atvinnurekendur og launafólk), þá er ljóst að það er best að hafa loft í öllum dekkjunum. Að sprengja eitt dekkið verður aldrei til þess að koma bílnum af stað og hvað þá upp úr hjólförunum! Hvatning til að grafa stríðsöxina Við í VR höfum ítrekað lýst yfir vilja til lausnamiðaðs samtal. Launahækkanir kjarasamninga eru, eins og staðan er núna, lægri en verðhækkanir og launaskrið sumra hópa í samfélaginu breytir engu um það. Að sama skapi er ekki hægt að tala um kaupmátt og lífskjör án þess að taka húsnæðiskostnað með í jöfnuna – og hann er yfirgengilega hár. Við munum aldrei fella okkur við frekari kjaraskerðingar, enda mun það ekkert gera til að bæta stöðuna, heldur eingöngu þrengja frekar að heimilum landsins og þá sérstaklega yngra fólki sem ber mikinn húsnæðiskostnað. Seðlabankastjóri hóf stríðsöxina á loft, en honum er í lófa lagið að grafa hana bara strax aftur. Þá getum við haldið samtalinu áfram af ábyrgð og yfirvegun, út frá gögnum og staðreyndum, ekki pólitískum kreddum. Höfundur er formaður VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Gunnarsdóttir Seðlabankinn Verðlag Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar