Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar 20. ágúst 2026 09:16 Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti 13. ágúst að hækka verð á heimsendum mat og mat sem afgreiddur er í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum. Verð fyrir lífeyrisþega var áður ýmist 1.100 eða 1.190 krónur en verður eftir breytingar 1.900 krónur fyrir hverja máltíð, sem tekur gildi 1. September nk. Það er hækkun upp á allt að 73%. Almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækkar einnig, úr 1.915 krónum í 2.387 krónur. Rökstuðningur meirihlutans er að rekstur eldhússins á Vitatorgi hafi lengi verið þungur, gildandi samningur um þjónustuna ekki fullfjármagnaður og því óumflýjanlegt að hækka gjaldskrá. Alvarlegar afleiðingar fyrir viðkvæma hópa Stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands lýsir þungum áhyggjum af svo umfangsmiklum hækkunum sem bitnar mest á fólki sem býr við færniskerðingar, fátækt, einmannaleika og félagslega einangrun. Heimsendur matur er fyrst og fremst nýttur af eldra fólki sem býr eitt, er með skerta færni til að elda sjálft, er oft á lífeyri einum saman, einum tekjulægsta hópi samfélagsins. Hækkun úr ca. 1.100-1.190 kr. í 1.900 kr. á máltíð þýðir að einstaklingur sem fær mat sendan heim daglega greiðir nú um 15-20.000 kr. meira á mánuði en áður. Fyrir fólk sem lifir á grunnlífeyri og tekjutengdum bótum getur þetta ráðið úrslitum um hvort fólk hafi efni á öðrum nauðsynjum, svo sem lyfjum, húshitun, öðrum mat. Þekkt afleiðing slíkra hækkana er að fólk „velur" að draga úr þjónustu frekar en að segja henni upp formlega, það hættir að panta mat suma daga, minnkar skammta, eða sleppir máltíðum, sem eykur hættu á vannæringu. Einmanaleiki og félagsleg einangrun Heimsendur matur er ekki eingöngu næringarþjónusta heldur oft eina reglubundnu mannlegu samskiptin sem eldra fólk sem býr við félagslega einangrun fær yfir daginn, stutt samtal við þann sem kemur með matinn og öryggisvitund um að einhver líti inn. Þegar fólk hættir að nýta þjónustuna vegna kostnaðar tapast þessir félagslegu snertifletir, sem er sérstaklega alvarlegt fyrir þá sem búa einir og hafa takmarkað tengslanet. Rannsóknir á öldrunarþjónustu benda ítrekað á að skerðing eða hækkun gjalda á grunnþjónustu leiðir oft ekki bara til minni notkunar heldur til vítahrings: minni félagslegrar virkni → aukin einangrun → versnandi andleg og líkamleg heilsa → aukin þörf fyrir dýrari inngrip t.d. innlagnir á sjúkrahús og þörf fyrir hjúkrunarheimili. Máltíðir í félagsmiðstöðvum hefur að auki hreint félagslegt hlutverk, fólk sem hættir að mæta vegna verðs missir af félagsstarfinu sem tengist máltíðinni. Aðgengi að þjónustu og jafnræði Félagsmiðstöðvum er beinlínis ætlað að tryggja bæði félagsskap og næringu, auk hreyfingar og tómstunda. Lög nr. /1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga nefna sérstaklega skyldu sveitarstjórna til að sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi og þar er sérstaklega nefnd heimaþjónusta, félagsráðgjöf og heimsending matar. Það er áhyggjuefni að þessi hækkun kemur á sama tíma og eldra fólk er hvatt til að búa lengur heima sbr. aðgerðaáætlun stjórnvalda um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023-2027 sem gengur undir nafninu „Gott að eldast“. Þessar áherslur birtast í stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum eldri borgara 2018-2022 með markmið um að fólk fái tækifæri til að viðhalda færni sinni og halda áfram að lifa því lífi sem það kýs. Ef kostnaður við grunnþjónustu sem gerir búsetu heima mögulega hækkar verulega, grefur það undan þeirri stefnu og ýtir undir að viðkvæmasti hópurinn annað hvort einangrist enn frekar heima án viðunandi næringar, eða flytjist fyrr í dýrari úrræði en ella hefði þurft. Höfundur er í stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands hvetur borgarráð til að endurskoða þessa ákvörðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Reykjavík Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar