Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Kristján Már Unnarsson skrifar 18. ágúst 2026 22:20 Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Jón Ben Sigurðsson, bændur í Böðvarshólum, ásamt yngsta barninu, syninum Sigurði Pétri. Egill Aðalsteinsson Rekstur hundahótels er orðin aukabúgrein sauðfjárbænda í Vesturhópi í Húnaþingi. Hinir fjórfættu gestir hótelsins koma ekki bara að sunnan heldur af landinu öllu.
Í kvöldfréttum Sýnar fórum við að bænum Böðvarshólum í Vesturhópi en þar er rekið hundahótel og kallast Hólakot. Þar búa þau Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Jón Ben Sigurðsson ásamt þremur börnum sínum. Þau eru bæði búfræðingar frá Hvanneyri. Búskapurinn byggist á sauðfjárrækt en þetta er fjórða sumarið sem þau reka hundahótel. „Mér bara datt þetta einhvern tímann í hug í fæðingarorlofi. Hvernig við gætum skapað aðeins meiri vinnu hérna heima með sauðfjárræktinni,“ segir Ingveldur. Horft heim að íbúðarhúsi fjölskyldunnar í Böðvarshólum.Egill Aðalsteinsson Við spyrjum hvort gestir hundahótelsins séu einkum að sunnan: „Ekki þessir tveir. Annar er nú bara hérna úr Víðidal og hinn frá Blönduósi. En okkar stærsti markhópur hefur verið höfuðborgarsvæðið. Svo hefur það færst svolítið yfir á Akureyri og Sauðárkrók,“ svarar hún. „Við höfum fengið gesti alveg alls staðar að af á landinu. Af Ströndunum, úr Árneshreppi, austan frá Reyðarfirði,“ segir Jón. „Já, Egilsstaðir. Ég held við séum að vera komin hringinn,“ segir Ingveldur sem er lærður hundaþjálfari. Hundahótelið er í gamla minkahúsinu.Egill Aðalsteinsson Þau þjálfa einnig smalahunda og segja hundahótelið ágæta búbót með sauðfénu. „Þetta er fínt með,“ segir hún. „Mjög gott svona með. Eins og við segjum, það er gott að skapa aðeins meiri vinnu hérna heima á hlaði,“ segir hann. Hundahótelið er í gömlu minkahúsi. Þar eru búr fyrir hundana en þau eru einnig með afgirt útisvæði. „Hótelherbergi“ hundanna. Börnin eru Margrét Ragna tólf ára, Klara Björg sex ára og Sigurður Pétur fimm ára.Egill Aðalsteinsson -Gestirnir, aðkomuhundarnir, eru þeir ekkert feimnir við ykkur? „Nei, þeir eru mjög fljótir að byrja að elska okkur. Það gengur bara mjög vel með flesta. Þeir eru bara æðislegir sko,“ segir Ingveldur. Og sumir gestahundanna fá stundum að fara út fyrir girðinguna en eftir samráð við eigendur. „Það fer svona eftir því hvernig þeir eru. Og ef þeir hafa komið oft og maður þekkir þá vel, þá fer ég alveg í langa göngutúra með þá hérna. Og þeir elska það að hlaupa um, bara niður að á eða eitthvert. Það er mjög gaman, já. En það er ekki hægt við alla.“ -Þeir myndu ekki bara stinga af heim til sín og fara yfir Holtavörðuheiði suður? „Sumir kannski myndu gera það. Þess vegna fer ég ekki út með þá lausa,“ svarar Ingveldur Ása hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Hundar Landbúnaður Húnaþing vestra Dýr Sauðfé Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira