Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar 15. ágúst 2026 07:03 Andreas Voßkuhle, sem var forseti þýska stjórnlagadómstólsins á árunum 2010–2020, kallar í nýlegu viðtali við Die Zeit eftir djúpstæðum og skjótum umbótum á þýska ríkinu. Ummæli hans vöktu athygli í þýskum fjölmiðlum og WELT hafði eftir honum 13. ágúst: „Að mínu mati erum við komin að vendipunkti. Ef við breytumst ekki fer illa fyrir okkur.“ Gagnrýni Voßkuhle beinist ekki aðeins að umfangi skrifræðisins heldur að hugarfarinu sem hefur þróast innan kerfisins. Hann segir Þýskaland orðið áhættufælið, fullkomnunaráráttukennt, sjálfumglatt og tæknifjandsamlegt og hafa misst tilfinninguna fyrir hraða. Hann lætur dómskerfið ekki ósnert. Þar telur hann ríkja ákveðinn hugarfarsvanda. Ofuráhersla á fræðilega nákvæmni og smáatriði geti orðið til þess að menn missi sjónar á raunverulegum afleiðingum ákvarðana og tafa. Hann nefnir sérstaklega að fyrirtæki geti verið komið í tilvistarhættu vegna þess hve lengi dómsmál tekur án þess að sú staðreynd fái nægilega athygli. Þetta eru óvenju sterk orð frá manni sem gegnt hefur einu æðsta embætti þýska réttarkerfisins. En þau koma heldur ekki úr tómarúmi. Umræða um reglubyrði, fjárfestingar, nýsköpun og minnkandi samkeppnishæfni hefur færst ofar á dagskrá í Evrópu á undanförnum árum. Evrópusambandið sjálft hefur viðurkennt vandann og sett einföldun regluverks og aukna samkeppnishæfni í forgang. Það er þó langt í frá sjálfgefið að ESB takist að vinna bug á þeirri sterku tilhneigingu til aukins regluverks og skrifræðis sem einkennt hefur sambandið. Það skiptir okkur Íslendinga máli. Í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst er gjarnan talað um Evrópusambandið eins og aðild að því feli sjálfkrafa í sér aukna hagkvæmni, stöðugleika og betra rekstrarumhverfi. En Evrópa stendur sjálf frammi fyrir stórum spurningum um framtíð efnahagslífs síns og hvernig megi endurheimta samkeppnishæfni gagnvart Bandaríkjunum og Asíu. Þetta skiptir ekki síst máli fyrir lítið hagkerfi eins og Ísland. Íslensk fyrirtæki eru almennt lítil á evrópskan mælikvarða og í besta falli meðalstór. Kostnaður við flókið regluverk getur því vegið mun þyngra á þau en stór fyrirtæki sem hafa sérstakar deildir og sérfræðinga til að sinna því. Hugverkaiðnaðurinn er jafnframt orðinn ein mikilvægasta vaxtargrein íslensks þjóðarbús. Þar byggist verðmætasköpun ekki síst á hraða, frumkvæði, nýsköpun og getu fyrirtækja til að bregðast hratt við nýjum tækifærum á alþjóðlegum mörkuðum. Það er einmitt á slíkum eiginleikum sem of mikil reglubyrði og hæg stjórnsýsla geta bitnað. Voßkuhle er að tala um Þýskaland, ekki Ísland, og gagnrýni hans á þýska ríkið verður ekki sjálfkrafa yfirfærð á Evrópusambandið. En orð hans eru engu að síður verðugt umhugsunarefni fyrir okkur. Þýskaland er stærsta hagkerfi Evrópu og ein helsta iðnaðar- og efnahagsstoð sambandsins. Þess vegna eigum við ekki aðeins að spyrja hvað aðild að Evrópusambandinu hefði þýtt fyrir Ísland fyrir tíu eða tuttugu árum. Við þurfum líka að spyrja hvert Evrópa stefnir nú og hver staðan verður eftir 10-15 ár. Þetta kom líka glöggt fram hjá frummælendum á málþingi Bændasamtakanna 14. ágúst. Þegar einn virtasti lögfræðingur Þýskalands segir að kerfið sé komið að vendipunkti og þurfi djúpstæðar umbætur er ástæða til að taka þá viðvörun alvarlega. Spurningin fyrir Ísland er ekki aðeins hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið. Hún er líka: Inn í hvaða Evrópusamband? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar