Erna Bjarnadóttir

Erna Bjarnadóttir

Greinar eftir Ernu Bjarnadóttur, varaþingmann Miðflokksins í Suðurkjördæmi.

Fréttamynd

Gerðir samningar sviknir af ESB

Fremur furðuleg grein birtist í gær á Vísi eftir Andrés Pétursson, fyrrverandi formann Evrópusamtakanna. Þar gerði hann að umræðuefni reynslu frænda okkar Íra af sjávarútvegsmálum innan Evrópusambandsins. Slæma reynslu svo ekki sé meira sagt.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tolla­banda­lag ESB og mörk „sérlausna“

Í umræðuþættinum Torginu setti Gunnar Þór Pétursson forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, fram þá hugmynd að mögulega mætti semja um að búvörur yrðu ekki tollfrjálsar frá fyrsta degi við aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem hluta af aðlögun eða tímabundinni ráðstöfun. Slík nálgun hljómar aðlaðandi við fyrstu sýn. En hún þarf að standast lagaramma sambandsins, auk reynslu úr aðildarviðræðum annarra ríkja og ekki síður úr viðræðum Íslands og ESB á árunum 2009–2013.

Skoðun
Fréttamynd

Svíar lækka matarskatt – Norð­menn ræða – en hvað með Ís­land?

Verðbólgan leikur fleiri grátt en íslenska neytendur um þessar mundir. Í sumum nágrannalanda okkar hefur þegar verið gripið til aðgerða eða umræða um þær í gangi. Í Svíþjóð hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 12% í 6% tímabundið, frá 1. apríl og út árið 2027. Samhliða hafa eldsneytisgjöld verið lækkuð, sem styrkir kaupmátt neytenda og samkeppnisstöðu landsins. Svíar reikna með að áhrifin komi fljótt fram í verslun þegar neytendur í nágrannalöndum beina innkaupum sínum til landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar reglu­gerðir og raun­veru­leiki rekast á

Stefnumótun í Evrópu, Íslandi ekki undanskildu, hefur á undanförnum árum í vaxandi mæli verið markmiðadrifin. Loftslagsmarkmið, siðferðismarkmið, útlit landslags eða hvar annars staðar sem fæti er drepið niður.

Skoðun
Fréttamynd

Mót­mæli frá gras­rótinni eru orðin saga í Evrópu

Undanfarna mánuði hafa mótmæli fólks sem starfar í grunninnviðum eins og matvælaframleiðslu og dreifingu á nauðsynjavörum orðið sífellt meira áberandi víða um Evrópu. Skýr hápunktur birtist í Brussel þann 18. desember sl. með fjölmennum mótmælum bænda frá öllum löndum sambandsins.

Skoðun
Fréttamynd

Mót­mæli bænda í Brussel eru ekki sjónar­spil – þau eru við­vörun

Þegar greint er frá mótmælum bænda í Brussel beina fjölmiðlar jafnan athyglinni að yfirborðinu: táragasi, kartöflukasti og brennandi dekkjum. Slíkar myndir selja fréttir, en segja lítið um kjarna málsins. Raunveruleg skilaboð mótmælanna eru margfalt dýpri – og snúast ekki um einstaka ákvörðun, heldur um kerfi sem hefur misst tengsl við þá sem bera það uppi.

Skoðun
Fréttamynd

Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi

Síðustu ár hafa sýnt með skýrum hætti hversu viðkvæmar alþjóðlegar aðfangakeðjur geta verið þegar ytri aðstæður raskast. Heimsfaraldurinn og innrás Rússlands í Úkraínu leiddu til truflana á flutningum, orku, áburðarhráefnum og kornútflutningi sem höfðu bein og víðtæk áhrif á matvælakerfi ríkja um allan heim. Þessar truflanir leiddu huga fólks fljótt að því að fæðuöryggi væri ekki aðeins hagsmunamál framleiðenda heldur grundvallarinnviður sem hefði áhrif á stöðugleika samfélaga í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Að­dragandi aðildar þarf um­boð

Í grein Magnúsar Árna Skjöld Magnússonar sem birtist á Vísi 22. júlí er því haldið fram að gagnrýnin á samstarf við ESB í öryggismálum sé byggð á þeirri skoðun að verið sé að „læða“ landinu inn í sambandið „bakdyramegin“. Hér er hætta á að umræðan verði persónugerð og gerð tortryggileg.

Skoðun
Fréttamynd

Sögu­legur dómur Hæsta­réttar – stað­festir sjálf­stæði Al­þingis

Dómur Hæstaréttar Íslands í síðustu viku um breytingar á búvörulögum er þýðingarmikill fyrir íslenskt lýðræði og stjórnarskrárbundna þrískiptingu ríkisvaldsins. Í málinu var tekist á um hvort Alþingi hefði brotið gegn stjórnarskránni þegar gerðar voru verulegar breytingar á frumvarpi við meðferð þess á Alþingi.

Skoðun
Fréttamynd

Toll­flokkun rifins osts: Rang­færslur og stað­reyndir

Í fréttaskýringu Viðskiptablaðsins þann 25. febrúar sl. er enn og aftur farið með rangt mál um tollflokkun á tiltekinn vöru sem að uppistöðu er rifinn ostur. Þrátt fyrir að íslenskir dómstólar hafi margoft úrskurðað í málinu og hafnað röngum fullyrðingum stefnanda málsins (Danól ehf., innflutningsaðila vörunnar), heldur blaðið áfram að birta mistúlkanir og ósannindi sem eru upprunnin úr þeim herbúðum.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar Sam­tök verslunar og þjónustu vita betur

Í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins birtist grein eftir háskólalektorinn Kristin Má Reynisson en hann er jafnframt lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). Í grein Kristins birtast skoðanir hans um alþjóðleg viðskipti og gengur hann svo langt að fullyrða að íslensk stjórnvöld viti betur en geri annað þegar að tollamálum kemur.

Skoðun
Fréttamynd

„Smækkunar“gler Við­skipta­ráðs

Þann 15. ágúst sl. birtist grein í skoðanadálki visir.is frá sérfræðingi á hagfræðisviði Viðskiptaráðs, Ragnari Sigurði Kristjánssyni. Greininni var ætlað að svara ýmsu því sem fram kom í viðbrögðum við úttekt ráðsins í nýliðinni viku á áhrifum afnáms tolla á tilteknum landbúnaðarvörum.

Skoðun
Fréttamynd

Leitin að sjálfum sér

Í liðinni viku birti Viðskiptaráð frá sér úttekt „…á áhrifum tolla á verð nokkurra vinsælla vörutegunda“. Í texta fréttar um úttektina á heimasíðu Viðskiptaráðs fylgir síðan eftirfarandi alhæfing. „Á Íslandi eru háir tollar lagðir á innflutt matvæli.“

Skoðun
Fréttamynd

Mjólk hækkar minnst í verði á Íslandi

Í síðustu tveimur tölublöðum Viðskiptablaðsins hefur litlu verið til sparað í gagnrýni á starfsumhverfi mjólkurframleiðslunnar og fyrirtæki bænda þar sem réttu máli er hallað. Lítum aðeins á fáein atriði:

Skoðun
Fréttamynd

„Máli réttu hallar hann, hvergi dóma grundar“

Það verður seint sagt að Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA), þreytist í hagsmunagæslu fyrir innflutningsaðila og heildsala. Þann 22. apríl sl. birtist grein eftir framkvæmdastjórann sem enn einn slíkur vitnisburður.

Skoðun
Fréttamynd

Mjólkur­af­urðir hækka minnst í verði á Ís­landi

Um nýliðna páskahelgi steig formaður Viðreisnar fram í grein á Vísi og lýsti eigin undrun og skelfingu við að greiða fyrir mat á Íslandi. Var helst á henni að skilja að allt stafaði það af stöðu Mjólkursamsölunnar á markaði hérlendis og var engu til sparað í lýsingum á afleiðingum þess.

Skoðun
Fréttamynd

Mjólkurafurðir hækka minnst í verði á Íslandi

Undanfarið ár hefur verðbólga verið í sögulegum hæðum í nágrannalöndum okkar. Helstu verðbólguvaldar eru þar verð á eldsneyti (þar með talið húshitunarkostnaði) og matvöruverð sem hefur hækkað með ógnarhraða síðastliðið ár.

Skoðun