Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 08:01 Á allra síðustu dögum hafa komið upplýsingar frá barna- og menntamálaráðuneytinu um að breyta eigi fyrirkomulagi námsmats í grunnskólum. Að 10. bekkur muni fá námsmat í tölustöfum í lokamati í vor í stað bókstafa, þrátt fyrir að ekki sé búið að breyta aðalnámskránni. Eins og áður eiga kennarar að finna út úr þessu sjálfir, þ.e. hvernig breyta og aðlaga eigi hæfnimiðað nám og bókstafaeinkunnir að útreiknuðum tölustöfum. Þegar aðalnámskrá var breytt árið 2011 og fallið var frá námsmati í tölustöfum og því breytt í bókstafi var nákvæmlega sama uppi á teningnum. Breytingar voru boðaðar og skólarnir áttu að finna lausnirnar sjálfir, engin innleiðing, ekkert stuðningsefni og ekkert fjármagn fylgdi breytingunum. Skólastjórnendur, kennarar og annað skólafólk skipuleggur og undirbýr nú skólastarf komandi vetrar. Skólastarfið og kennslan eru skipulögð eftir ramma og reglum aðalnámskrár grunnskóla líkt og lög gera ráð fyrir. Unnið er markvisst að fjölbreyttri færni sem markast meðal annars af fjölmörgum hæfniviðmiðum námskrárinnar og kennarar leggja mikla áherslu á að gera það faglega og vel. Skólaárið fer því af stað án þess að búið sé að breyta aðalnámskrá en með þeim skilaboðum að henni verði breytt í vetur og námsmat 10. bekkjar verði með öðrum hætti í vor. Undirbúningsvinna með kennurum er engin. Samráð við kennara er ekkert. Þessi vinnubrögð eru með hreinum ólíkindum og sýna fagmennsku kennara algjöra vanvirðingu. Áætlað er að breyta aðalnámskránni í vetur og innleiða hana svo á einhvern hátt samhliða kennslunni. Að sjálfsögðu spyrja kennarar að því af hverju aðalnámskrá sé ekki breytt fyrst og að því loknu fari fram innleiðing og fræðsla til handa kennurum og fjármagn sé sett í breytingarnar. Að því loknu sé svo farið af stað í framkvæmd breytinganna. Kennarar spyrja einnig hvaða faglegu rök kalli á þessar breytingar. Svarið sem fæst er að þetta sé ákvörðun ráðherra. Punktur. Í ljósi þess að umræða um námsmat hefur að undanförnu snúið að misjöfnum skilningi á því hvað A og B þýði milli skóla er heppilegt að hafa í huga að breytingar eru sífellt boðaðar án samráðs, innleiðingar, fræðslu og fjármagns. Það gerir það að verkum að fagfólk í hverjum skóla þarf að finna leiðir til að aðlaga breytingarnar að skólastarfinu. Ómældur tími og vinna kennara fer í að finna lausnir. 44 fjölbreyttir grunnskólar eru starfandi í Reykjavík og það gefur auga leið að lausnirnar verða fjölbreyttar fylgi þeim ekki leiðbeiningar og undirbúningur. Kennarar setja sig ekki upp á móti breytingum á formi einkunnagjafa en gera kröfur um að innleiðing, fræðsla og fjármagn fylgi breytingum og að samráð sé haft við fagfólkið. Kennarar vilja stuðla að öflugu skólakerfi með skólaþróun og menntaumbótum. Skólastarf er í stöðugri þróun og sá þáttur gerir kennarastarfið virkilega áhugavert og skemmtilegt. Það er brýnt að stjórnvöld sjái mikilvægi þess að einbeita sér að þáttum sem raunverulega skipta máli, líkt og að stórefla námsefnisútgáfu. Forgangsröðun og faglegur undirbúningur breytinga skiptir miklu máli. Eins að breytingar séu vel ígrundaðar og gerðar á faglegum grunni. Höfundur er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar