Innlent

Ís­lendingur og út­lendingur í gæslu­varð­hald vegna mannsláts í Kópa­vogi

Agnar Már Másson skrifar
Atvikið átti sér stað á Kársnesi.
Atvikið átti sér stað á Kársnesi. Vísir

Tveir karlmenn voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti í Kópavogi í gær.

Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu.

Þar segir að annar mannanna hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Annar þeirra sé íslenskur, en hinn erlendur ríkisborgari.

Hinn látni var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri, að sögn lögreglu.

Fleira kemur ekki fram í tilkynningu lögreglu.

Tilkynnt var um líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi síðdegis í gær, en maðurinn sem fyrir henni varð var fluttur á Landspítalann og lést þar síðdegis hinn sama dag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varist allra fregna af rannsókn á meintu manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær, sunnudag. 

Nokkrir voru í upphafi handteknir vegna málsins, að sögn lögreglu. 

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×