Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Freyja Þórisdóttir skrifar 9. ágúst 2026 07:45 Alls sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu á varðsvæði eitt. Engar upplýsingar eru í dagbók lögreglu um hvar eða hvenær árásirnar eigi að hafa verið framdar. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu.
Lögreglan á stöð eitt hafði í nægu að snúast í gær og í nótt en í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru áttatíu og sjö mál skráð frá klukkan 17:00 í gær og þar til kl 05:00 í morgun. Í það minnsta þrír gistu í fangageymslum fram undir morgun. Á varðsvæði stöðvar eitt var lögregla kölluð til vegna hóps ungmenna sem gengu um í miðborginni en eitt þeirra átti að hafa verið með hníf. Þá var tilkynnt um enn eitt innbrotið en aðili var handtekinn á vettvangi og gisti í fangageymslu uns mögulegt þótti að taka af honum skýrslu. Sumarið ekki eftir vonum Tilkynning um að það væri vatnsleki í fjölbýli barst lögreglunni og var slökkviliðið einnig kallað til vegna málsins. Þá var lögregla fengin til að aðstoða starfsfólk bráðamóttökunnar en þar var maður sem neitaði að fara og varð að vísa honum burt. Hátt í fimmtán ökumenn voru stöðvaðir í akstri, flestir voru þeir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna eða áfengis en einnig voru í það minnsta átta stöðvaðir fyrir of hraðan akstur eða akstur án réttinda. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að aka um á nagladekkjum en í dagbókinni er minnt á það að „þó að sumarið hafi ekki verið eftir vonum á höfuðborgarsvæðinu minnir lögregla á að tímabil nagladekkja hefst ekki fyrr en 1. nóvember“.
Lögreglumál Reykjavík Umferðaröryggi Nagladekk Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira