Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 9. ágúst 2026 22:02 Rannsóknin sýnir marktæk tengsl milli netnotkunar og geðheilsu. kristinn ingi/hÍ Marktækt samband er á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkenna hjá stúlkum. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna einnig fram á að líkamlegt þrek hópsins fer versnandi.
Óttar Guðbjörn Birgisson, sálfræðingur og lektor við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands stendur að rannsókninni en þar skoðar hann hvernig netsamskipti og samfélagsmiðlanotkun íslenskra ungmenna tengist geðheilsu og líkamlegu þreki þeirra. Óttar lagðist yfir gagnasafn sem nær aftur til ársins 2003 og skoðaði hvernig einkenni þunglyndis og kvíða hafa breyst hjá 15 ára ungmennum frá árinu 2003 til 2015. „Það sem kom kannski hvað mest á óvart er að árið 2003 þá voru samfélagsmiðlar notaðir. Fólk var byrjað að nota frumstæða samfélagsmiðla. MSN og Hugi.is voru vinsælir á Íslandi. Fólk átti samskipti á netinu en það virtust ekki vera nein tengst þótt fólk notaði það mikið, þá virtist það ekki hafa nein áhrif á geðheilsu þess. Upp úr 2015 tókum við eftir því að það var tölfræðilega marktækur munur á geðheilsunni hjá 15 ára einstaklingum árið 2003 og 2015 og þá sérstaklega hjá stúlkum og við sáum sérstaklega þunglyndiseinkenni.“ Breyting á líkamlegu þreki Á sama tíma versnaði líkamlegt þrek þessa hóps. „Þau gátu erfiðað minna á þrekhjólum árið 2015 og 2017 miðað við árið 2003. Það voru engin tengsl um að það skýrðist af netnotkuninni sem slíkri en það eru ýmsir þættir sem má gera sér grein fyrir að hafi áhrif á versnandi þrek, meiri kyrrsetja sem vissulega tengist skjánotkun almennt.“ Skoða undir húddið Hann segir niðurstöðurnar ekki koma stórkostlega á óvart. Mikilvægt sé að kafa dýpra ofan í netnotkunina sjálfa. „Það þarf að skoða meira undir húddið. Hvað veldur þessu? Er það eitthvað ákveðið við samfélagsmiðlana? Og skoða þá frekar hvað nákvæmlega er það. Hverjir eru í áhættuhópi og hvað er hægt að gera. Því samfélagsmiðlarnir eru ekki að fara neitt þannig það þarf að rannsaka frekar miðlunarbreytur og þess háttar.“
Samfélagsmiðlar Vísindi Börn og uppeldi Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira