Innlent

Beint streymi frá Gleðigöngunni

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Frá Gleðigöngunni í fyrra.
Frá Gleðigöngunni í fyrra. Vísir/Viktor Freyr

Hápunktur hinsegin daga fer fram í dag þegar Gleðigangan verður gengin frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og Bankastræti. Gangan hefst klukkan 14 og að henni lokinni fara fram útitónleikar í Hljómskálagarðinum. 

Helga Haraldsdóttir formaður Hinsegin daga segir hátíðina einstaklega glæsilega í ár og það stefni í metþátttöku í Gleðigöngunni. Það sé til marks um breiða samstöðu með hinsegin samfélaginu.

Hægt er að fylgjast með göngunni í streymi hér að neðan: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×