Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar 5. ágúst 2026 20:15 Ég var nýkominn í sumarfrí og sat úti á pallinum í góða veðrinu með kaffibolla og dagblað. Í kringum mig börn að leik með tilheyrandi hlátrasköllum. Það var notaleg stund þar sem ég hafði loksins tíma til að slaka á. Stuttu síðar greip ég ósjálfrátt símann og fór að fletta fréttum og samfélagsmiðlum, kíkti líka á póstinn. Tíminn leið allt í einu mjög hratt og þegar ég leit upp tók ég eftir því að þögn ríkti allt um kring, börnin höfðu líka gripið í símana sína. Fyrir örfáum mínútum höfðu þau verið að leika sér. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði líklega gefið tóninn – án þess að segja eitt einasta orð. Þetta fékk mig til að velta einni spurningu fyrir mér: Ef börnin okkar taka svona auðveldlega upp skjávenjur okkar, hvers vegna skyldu þau þá ekki líka taka upp lestrarvenjur okkar? Á hverju ári ræðum við um lesskilning, læsi og skjátíma. Við höfum áhyggjur af því að börn lesi minna en áður og veltum fyrir okkur hvernig megi snúa þeirri þróun við. En kannski byrjar lausnin nær okkur sjálfum en við höldum. Börn læra ekki bara af því sem við segjum. Þau læra af því sem við gerum. Ef þau sjá okkur sífellt með símann í hendinni verður það hið eðlilega. Ef þau sjá okkur reglulega með bók í hönd verður það líka eðlilegt. Þess vegna held ég að sumarið sé einstakt tækifæri. Þá hægist aðeins á lífinu. Við eigum fleiri róleg augnablik á pallinum, í sumarbústaðnum, á tjaldsvæðinu, á kaffihúsi eða við sundlaugarbakkann. Augnablik þar sem við getum annaðhvort gripið símann – eða opnað bók. Við lifum á tímum þar sem athygli okkar er stöðugt sótt. Tilkynningar, samfélagsmiðlar og myndbönd keppast um hverja lausa mínútu. Það er orðið svo sjálfsagt að grípa í símann að við tökum varla eftir því lengur. En bók býður upp á eitthvað allt annað. Þegar við lesum hægir á okkur. Við sökkvum okkur í sögu eða hugmynd, ímyndunaraflið fær að njóta sín og hugurinn fær loksins að dvelja við eitt verkefni í einu í stað þess að taka sífellt við tilkynningum og öðru áreiti. Margir upplifa að lestur sé besta leiðin til að slaka á og gefa taugakerfinu hvíld frá stöðugu skjááreiti. Rannsóknir hafa sýnt að lestur skiptir miklu máli fyrir orðaforða, lesskilning og málþroska barna. Þær sýna líka að fyrirmyndir skipta máli. Þegar börn sjá foreldra sína lesa aukast líkurnar á að þau fái sjálf áhuga á bókum. Þetta snýst ekki um að skjáir séu vondir. Þeir eru orðnir ómissandi hluti af lífi okkar. En eins og með svo margt annað snýst þetta um jafnvægi. Kannski þurfum við ekki fleiri reglur um skjátíma. Kannski þurfum við einfaldlega fleiri fullorðna sem sjást lesa. Sem betur fer er auðvelt að byrja. Bókabúðir og bókasöfn landsins eru þessa dagana full af nýjum og spennandi sumarbókum – fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Það er til bók fyrir alla. Hvort sem þú ert átta eða áttatíu ára skiptir mestu máli að finna bók sem kveikir lestrargleðina. Kannski er það einmitt ein besta sumargjöfin sem við getum gefið sjálfum okkur og börnunum okkar. Ekki að leggja símann alveg til hliðar, heldur að leggja hann frá okkur öðru hvoru og opna í staðinn bók. Þegar börnin okkar sjá okkur lesa eru meiri líkur á að þau vilji gera það líka. Í sumar skulum við ekki aðeins segja börnunum okkar að lesa. Sýnum þeim hvernig það lítur út. Höfundur er markaðsstjóri Forlagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar