Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Agnar Már Másson skrifar 28. júlí 2026 19:57 Sævar Helgi Bragason er maðurinn sem allt veit um almyrkva á sólu þann 12. ágúst næstkomandi.Til hægri má sjá þær götur sem lokað verður. vísir Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík.
Miðvikudaginn 12. ágúst sést almyrkvi á sólu yfir vesturhluta landsins. Sævar Helgi Bragason, sem hefur staðið að undirbúningi í kringum atburðinn síðustu tvö ár, segir að mikið umstang sé í kringum almyrkvann enda megi búast við að 70 til 80 þúsund ferðamenn verði á landinu til að fylgjast með sólmyrkvanum ásamt heimamönnum. Á höfuðborgarsvæðinu sést best til almyrkvans á Seltjarnarnesi og verður því lokað fyrir fjölda gatna í bæjarfélaginu. Í Vesturbænum verða sömuleiðis götulokanir við Ægissíðu þar sem búast má við miklum fjölda. „Það má gera ráð fyrir því að það verði töluverður fjöldi fólks saman kominn, þess vegna verður Ægissíðunni lokað, Suðurgötu líka og aðeins inn á Seltjarnarnes. Þannig að hér verður bara gott að vera að fylgjast með fallegustu sýningu náttúrunnar.“ Hér eru rauðmerktar þær götur sem lokað verður þann 12. ágúst næstkomandi. Íbúar Reykjavikur mega búast við að fá að njóta almyrkvans í um eina mínútu.vísir Sjálfur hyggst Sævar hyggst fylgjast með almyrkvanum heima hjá sér í Fossvogi í Reykjavík, en þar varir almyrkvinn í um mínútu. En hvar varir hann sem lengst? Almyrkvinn sé lengstur á landi við Látrabjarg, þar sem hann vari 2,13 mínútur. Hann vari í um 2,09 mínútur vestast á Snæfellsnesi og svo um 1,40 vestast á Reykjanesskaga. Sævar segir mikilvægt að vera inni í almyrkvaslóðinni til að geta séð fyrirbærið en hana má sjá inni á vefslóðinni solmyrkvi2026.is. Veðurfar hefur aftur á móti leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt það sem af er sumri og margir hljóta því að velta fyrir sér hvað gerist ef það verður skýjað. „Það fer bara eftir því hversu skýjað er. Ef veðrið er eins og það er núna (skýjað með köflum) og við sjáum í sólina, þá upplifum við allt sem almyrkvinn hefur upp á að bjóða. Við þurfum nefnilega ekki fullkomið veður eins og margir halda. Það þarf ekki fullkomlega heiðskýrt veður. Ef það eru háský þá breytir það engu, ef það er alskýjað eins og júní hefur verið þá verða það vissulega talsverð vonbrigði. En þú upplifir samt einstökustu, stystu, fallegustu og eftirminnilegustu nótt ævinnar. Þetta verður upplifun sama hvernig viðrar. Og hún verður bara þannig inni á almyrkvaslóðinni. Ekki utan hennar og þess vegna á fólk að vera inni á almyrkvaslóðinni.“ Almyrkvi Þysjið út til að sjá kort af almyrkva. Smellið á línurnar til að sjá frekari upplýsingar.
Umferð Reykjavík Seltjarnarnes Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Sjá meira