Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. júlí 2026 22:37 Arna Ýrr Sigurjónsdóttir er sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Samsett/Þjóðkirkjan Regnbogafáninn verður málaður aftur á tröppur Grafarvogskirkju þegar veður leyfir segir sóknarprestur kirkjunnar. Sóknarnefnd tók ákvörðun um það á fundi í dag að tröppurnar verði málaðar á ný, en með breyttu sniði. Skemmdarverk á tröppunum í byrjun júlí hafi reynst kirkjunni afar dýrkeypt en það hafi verið í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið unnin á lóð kirkjunnar.
Öll málning var þrifin af tröppunum skömmu eftir að málað var yfir regnbogafánann í íslensku fánalitunum. Prófílmynd Grafarvogskirkju var uppfærð í síðustu viku og sýnir nú regnbogalitaðar tröppurnar, sem sumir virðast hafa skilið sem svo að búið væri að mála þær aftur. Þær eru hins vegar ennþá steinsteypugráar. Greint var frá því í dag að málið yrði rætt á sóknarnefndarfundi en ýmis „praktísk atriði“ hefði þurft að ræða að sögn Örnu Ýrar Sigurðardóttur, sóknarprests í Grafarvogskirkju. Hvenær þær verði málaðar er „eitt af þessum málum sem á eftir að útfæra“ en ýmsar hugmyndir hafi komið fram á fundinum. „Það verður bara gert þegar færi gefst, það er náttúrulega ekki beinlínis búið að vera veður til þess núna.“ Hinsegin fáninn verður ekki málaður á gangflöt trappanna, vegna hálkuvarna, heldur lóðrétt framan á þær, segir Arna. „Við þurfum aðeins að fara í smá hönnunarvinnu og svoleiðis en já, þær verða málaðar aftur.“ Málað var yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í íslensku fánalitunum í skjóli nætur, fyrr í mánuðum. Þetta sé í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið framin fyrir framan kirkjuna. „Í hin tvö skiptin máluðum við einfaldlega yfir en þetta skiptið er búið að vera okkur ansi dýrkeypt. Þetta skemmdarverk bara gerði það að verkum að við þurftum að leggja í heilmikinn kostnað við að hreinsa tröppurnar og við bara óskum nú bara eftir því að ef fólk vill styðja þennan málstað þá má hafa samband við okkur í Grafarvogskirkju og hjálpa okkur að dekka þann kostnað.“
Þjóðkirkjan Hinsegin Reykjavík Íslenski fáninn Tengdar fréttir Rannsaka málið sem hatursglæp Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál um skemmdarverk á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju. Lögregla segir málið rannsakað sem hatursglæp. 8. júlí 2026 15:18 „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Skemmdarverk á regnbogafánum við kirkjur eru orðin fastur og sorglegur árlegur liður í aðdraganda hinsegin daga. Þetta segir biskup Íslands sem segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og hinsegin fánann. 8. júlí 2026 11:10 Skemmdarvargarnir enn ófundnir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mennina sem máluðu íslensku fánalitina yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í gærnótt enn ófundna. Hún segir að á myndefni af svæðinu sjáist að minnst tveir hafi verið að verki. 9. júlí 2026 10:43 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Sjá meira
Rannsaka málið sem hatursglæp Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál um skemmdarverk á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju. Lögregla segir málið rannsakað sem hatursglæp. 8. júlí 2026 15:18
„Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Skemmdarverk á regnbogafánum við kirkjur eru orðin fastur og sorglegur árlegur liður í aðdraganda hinsegin daga. Þetta segir biskup Íslands sem segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og hinsegin fánann. 8. júlí 2026 11:10
Skemmdarvargarnir enn ófundnir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mennina sem máluðu íslensku fánalitina yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í gærnótt enn ófundna. Hún segir að á myndefni af svæðinu sjáist að minnst tveir hafi verið að verki. 9. júlí 2026 10:43