Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. júlí 2026 14:54 Atli Steinn er búsettur á Spáni þaðan sem hann starfar í fjarvinnu. Hann er einn af reynslumeiri blaðamönnum Morgunblaðsins og Mbl.is. Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is, hefur beðist afsökunar á mistökum sem hann segir þau stærstu á blaðamannaferli sínum. Atli Steinn taldi viðmælanda sinn vera að ræða bruna í Noregi en hið rétta var að um var að ræða eldsvoða í Færeyjum.
Atli Steinn er greinilega miður sín vegna málsins og segir í færslu á Facebook frá því að í samhljóða viðtali sem birtist bæði í Morgunblaðinu og á mbl.is í morgun hafi hann talið sig vera að ræða við viðmælanda sinn, Lúðvík Þór Blöndal, um stórbrunann í Drammen í Noregi um helgina. Að sögn Atla Steins sendi Lúðvík honum myndir af vettvangi sem blaðamaðurinn taldi vera frá Drammen. Í ljós kom hins vegar að Lúðvík var ekki staddur í Noregi heldur í Sørvági í Færeyjum, þar sem einnig varð mikið tjón vegna eldsvoða um helgina. Samtal þeirra, sem stóð í tíu mínútur, byggði því á grundvallarmisskilningi. Atli Steinn taldi sig heyra frásögn af atburðum í Drammen á meðan viðmælandinn lýsti í raun brunanum í Færeyjum. Atli Steinn biður íbúa Drammen, Færeyinga og lesendur Morgunblaðsins sem lásu fréttina í morgun afsökunar. Til marks um hve leiður hann er vegna mistakanna vísar hann til orðtaksins um að sá sé eldurinn heitastur er á sjálfum brennur. Hugsar til gagnrýnenda sinna Samhliða afsökunarbeiðni sinni segist Atli samgleðjast ónefndu samfélagi á ónefndum samfélagsmiðli og ónefndum kunnum fræðimanni sem sitji um hann hvert fótmál í von um að grípa hann glóðvolgan við stafsetningarvillu eða sönnun þess að texti Atla sé skrifaður af gervigreind. „Þið getið líklega gert ykkur mat úr þessu þótt það snúist ekki beinlínis um málfræði, hafandi nefnt mig nöfnum sem ég íþyngi lesendum ekki með.“ Í sömu færslu vísar Atli Steinn einnig, án þess að nefna nöfn, til gagnrýni sem hann hefur sætt á samfélagsmiðlum undanfarin misseri, þar sem hann hefur meðal annars verið sakaður um að nota gervigreind við skrif sín frétta — ásakanir sem hann hefur áður vísað á bug opinberlega. Atli skrifar einkar skapandi texta og leikur sér með íslenskt mál, mörgum til mikillar gleði en virðist stuða einstaka lesanda. Borið hefur á því að áhugafólk um íslenskt mál velti því fyrir sér hvort texti Atla komi frá gervigreind. Í einni slíkri umræðu í Facebook-hópnum Málvöndunarþættinum í fyrra svaraði Atli Steinn fyrir sig og sagði meðal annars: „Broslegt að sjá fólk ítrekað verða sér til skammar í botnlausri fáfræði, skilningsleysi og vanþekkingu á eigin tungu. Mættuð þó gjarnan hætta að beina máttlausu hatri ykkar og nötrandi heift að mér þegar dagleg þörfin til að drulla yfir aðra sækir að ykkur eins og sykurfíkn að barni.“ Fjölmargir hrósa Atla Steini fyrir að gangast við mistökunum sínum og biðjast afsökunar.
Fjölmiðlar Tengdar fréttir Hristir hausinn yfir fyrra líferni Atli Steinn Guðmundsson rifjar upp gamalt viðtal sem Inga Lind Karlsdóttir tók við hann um háskólalífið 1998 fyrir DV. Í þá daga sagðist Atli slaka á með ljósabekkjalegu, kraftreykingum og miklu kynlífi. Í dag hristir hann hausinn yfir lýsingunum. 10. október 2025 15:30 Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Það eru fáir sem kunna að lifa lífinu eins og Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins sem um árabil hefur fært Íslendingum magnaðar fréttaskýringar frá Noregi þar sem hann er búsettur. Atli gifti sig í síðustu viku við Miklagljúfur en það sem vakti hve mesta athygli við ráðahaginn var að kærasta þeirra hjóna gaf þau saman. 4. janúar 2025 07:03 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira
Hristir hausinn yfir fyrra líferni Atli Steinn Guðmundsson rifjar upp gamalt viðtal sem Inga Lind Karlsdóttir tók við hann um háskólalífið 1998 fyrir DV. Í þá daga sagðist Atli slaka á með ljósabekkjalegu, kraftreykingum og miklu kynlífi. Í dag hristir hann hausinn yfir lýsingunum. 10. október 2025 15:30
Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Það eru fáir sem kunna að lifa lífinu eins og Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins sem um árabil hefur fært Íslendingum magnaðar fréttaskýringar frá Noregi þar sem hann er búsettur. Atli gifti sig í síðustu viku við Miklagljúfur en það sem vakti hve mesta athygli við ráðahaginn var að kærasta þeirra hjóna gaf þau saman. 4. janúar 2025 07:03