Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júlí 2026 16:56 Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir mjög erfitt að koma alfarið í veg fyrir að gestir gangi illa um á gististöðum. Samsett mynd Dæmi eru um að ferðamenn bóki nótt á gististöðum hérlendis, afbóki svo og fái endurgreitt eftir að þeir hafi notað aðstöðuna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það undir þeim sem leiga út gistingu komið að ákveða hvort mál séu tilkynnt lögreglu. Hann telji það þó eðilegt ef um svik eða skemmdarverk sé að ræða.
Það hefur að sögn hans ekki aukist beinlínis að fólk á ferð um Ísland afbóki gistingu eftir að hafa þegar nýtt hluta gistiaðstöðunnar en aftur á móti komi reglulega upp mál þar sem fólk lendir í gestum sem gangi illa um, neiti að borga og þar fram eftir götunum. Eðlilegast að ræða við lögregluna „Maður heyrir öðru hverju af því að fólk lendi í alls konar veseni en ekkert sem er einhvers konar mynstur í sem að við setjum saman,“ segir Jóhann Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Ef skemmdir séu unnar á eignum eða ekki greitt fyrir gistingu liggi beinast við að láta lögreglu vita. Konan segist hafa verið í hálfgerðu áfalli þegar hún kom inn í íbúðina, vatn hafi verið inni í skápum, hár úti um allt og almennt miklu skítugra en þegar hún skildi við íbúðina.Aðsend „Ef aðstaðan er notuð og þau hafa ekki greitt neitt fyrir hana, ég tala nú ekki um ef einhverjar skemmdir hafa verið unnar, þá finnst mér vera bara langeðlilegast að ræða við lögreglu um það,“ segir hann en að ef gisting sé bókuð í gegnum þriðja aðila geti málið átt til með að flækjast. Þegar eitthvað svona komi upp þurfi að hafa samband við þann aðila sem bókunin sé gerð í gegnum, þó ekki sé nema bara til þess að láta vita að gestir hafi hagað sér með þessum hætti. Hér á landi er algengt að fólk leigi út íbúðir en sé ekki sjálft á staðnum til þess að taka á móti fólki. „Þegar verið er að selja svona gistingu þá náttúrulega er ágætisregla að taka á móti fólki og leggja því lífsreglurnar en það eru bara ekkert allir sem geta það og ég meina sums staðar byggir svona útleigugisting, sérstaklega þegar um er að ræða svona skammtímaleigur í heimahúsum, á því að fólk er ekki á staðnum.“ Þá séu lítil sem engin samskipti nema á netinu, lykill í lyklaboxi og flókið að fylgjast vel með því hvenær og með hvaða hætti fólk gengur um gistiaðstöðuna. Það sé gott að miða við að halda utan um sem mestar upplýsingar og hægt er varðandi þá gesti sem koma og fara. Lugu því að íbúðin væri öll í hárum Par sem var á ferðalagi um landið á dögunum lagði íbúð sem það hafði bókað í gegnum bókunarkerfi Booking.com í rúst og sveik svo leigusala um greiðslu. Af umræðu á Facebook-hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar að dæma er málið líklega ekki einsdæmi. Þá höfðu farið inn í íbúðina og greinilega nýtt sér sturtuaðstöðu, legið í rúminu og kveikt á sjónvarpi áður en þau óskuðu eftir því í samtali við leigusalann að fá endurgreitt og afbóka gistinguna. Það væri vegna þess að íbúðin væri öll úti í hárum. „Ég þreif sjálf og svo fórum við þarna og það var ekkert, engin hár í rúminu, það var náttúrulega bara hár eftir þau á gólfinu og inni á baðherbergi og annað,“ segir sú sem leigði parinu íbúðina í samtali við blaðamann en hún vildi ekki láta nafns síns getið. Aldrei séð annað eins Fólkið hafði að hennar sögn verið í rúmar fimm klukkustundir í íbúðinni án hennar vitundar en hún hélt að þau hefðu farið inn, ekki viljað vera þar lengur, fengið að afbóka og jafnframt endurgreitt og svo lagt leið sína annað. Það hefur þurft að teygja sturtuhausinn fram fyrir glerið til þess að ná að skapa þær aðstæður sem mynduðust. Skápar hafi til að mynda verið rennandi blautir að innanverðu.Aðsend „Ég hef aldrei lent í þessu áður, aldrei séð annað eins,“ segir hún en íbúðin var á floti þegar hún kom þar inn um klukkustund eftir að nágrannar sáu fólkið fara. Einnig voru túrblóðsblettir í sængurfötum og gluggar þaktir blautum klósettpappír. Það tókst að koma í veg fyrir varanlegar skemmdir, sem betur fer, segir hún en það hafi augljóslega verið viljaverk að spúla allt baðherbergið með sturtuhausnum sem sé fyrir innan gler. „Þetta er svona walk-in sturta með gleri, það er svo skrítið að taka sturtuhausinn og smúla fram yfir, af því að þú þarft virkilega að tosa hann til að ná fram yfir glerið.“ Hún segist hafa reynt að hafa samband við parið en að það hafi ekki tekist. Þá sagðist hún ekki ætla að leita með málið til lögreglu þar sem „lögreglan geti ekki gert neitt í þessu“. Núna sé hennar helsta von að Booking.com takist að hafa uppi á fólkinu svo að hún fái greitt fyrir nóttina. Á þeim tólf árum sem hún hafi starfað í ferðaþjónustu hafi hún aldrei lent jafn illa í því.
Ferðalög Ferðaþjónusta Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira