Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Áróra L Davíðsdóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 14. júlí 2026 19:46 Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir töluverðan fjölda mála vera í rannsókn lögreglu vegna innbrota. Samsett Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að töluverður fjöldi mála sé í rannsókn en þeim miði ágætlega. Ekki sé um skipulagða brotastarfsemi að ræða heldur séu málin „tilviljanakennd innbrot að næturlagi þar sem einstaklingar eru jafnvel að ná sér í verðmæti og peninga fyrir næsta neysluskammt.“ Flest innbrotanna hafa verið framin í mið- og vesturhluta Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi. Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald síðdegis í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrotanna. Ásmundur segist ekki geta tjáð sig að svo stöddu hvort maðurinn hafi tengsl við innbrot í fyrirtæki eða heimahús. Allur gangur sé á því hvers kyns þýfi innbrotanna sé. Sjóðsvélar séu tæmdar við innbrot í fyrirtæki en í heimahúsum sé tölvum, farsímum og úrum stolið. Greint var frá því fyrr í dag að eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafi ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Fjöldi innbrota aukist þegar fólk fari í frí og sé ekki heima hjá sér og „þar af leiðandi er greiðari aðgangur þeirra sem vilja brjótast inn að gera það.“ Nágrannavarsla sé ein besta forvörn gegn innbrotum. „Mjög gott að vera í góðum samskiptum og sambandi við sína nágranna, láta vita þeim nágrönnum sem maður treystir að fólk sé að fara að heiman og hvort einhverrar umferðar megi vænta um heimilið.“ Einnig sé mikilvægt að læsa gluggum og hurðum og að skilja engin sjánleg verðmæti eftir í bílum.
Lögreglumál Veitingastaðir Tengdar fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. 13. júlí 2026 10:53 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira
Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. 13. júlí 2026 10:53