„Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Smári Jökull Jónsson skrifar 14. júlí 2026 13:00 Pétur Markan er nýtekinn til starfa sem bæjarstjóri Grindavíkur og hann segir miklar vendingar framundan í málefnum bæjarins. Vísir/Vilhelm/Arnar Nýr bæjarstjóri Grindavíkur lítur ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólastarf að nýju í bænum. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna og að miklar vendingar séu framundan í málefnum bæjarins.
Bæjarstjóri Grindavíkur segir allt að verða klárt fyrir skólahald í bænum í haust. Byggt sé á góðum grunni og sumir þeirra sem ráðnir verði til starfa hafi kennt við skólann áður. „Það hafa alltaf verið mikil gæði í skólamálum hérna þannig að á þeim grunni og núna að hefja skólastarf aftur eru bara mikil tímamót. Það er mjög jákvætt,“ segir Pétur G. Markan bæjarstjóri Grindavíkur sem tók við starfinu í upphafi mánaðarins. Pétur segist ekki líta svo á að verið sé að fara gegn tilmælum Grindavíkurnefndar en í rammaáætlun sem skilað var í apríl mælti nefndin ekki með því að barnafjölskyldur flyttu aftur í bæinn á meðan óvissa varir. „Það eru miklar vendingar núna í málefnum bæjarins og við erum að vinna nýtt áhættumat sem í raun og veru tekur miða af því sem hefur verið unnið til öryggis í bænum. Þannig að það eru miklar vendingar og full ástæða til þess að fara af stað í haust.“ „Við verðum væntanlega komin lengra með málefni Þórkötlu“ Vendingarnar snúi að nýju verklagi við gerð áhættumats. „Það sem við erum að gera núna er að vinna nýtt áhættumat með öðrum leiðum þar sem reynsla og þekking heimamanna er tekin meira inn í gerð áhættumatsins. Það er algjör lykilaðferð til að gefa bænum eðlilegt rými til uppbyggingar og starfs,“ segir Pétur. „Við ætlum að nota sumarið mjög drjúgt í þetta og vinna af kappi. Þannig að ég trúi því að núna síðsumars verði komnar heilmiklar vendingar í uppbyggingu bæjarins með vísan að nýju áhættumati. Við verðum væntanlega komin lengra með málefni Þórkötlu, verið erum komin af stað með skólastarf og þá sjáum við að við erum farin að skrefa okkur markvisst til framtíðar.“ Gera allt til að tryggja öryggi Að hefja skólastarf sé fyrsta skrefið af mörgum í uppbyggingu bæjarins og styðja þurfi sérstaklega við nemendur og starfsfólk. „Ég held við munum gera allt til að tryggja bæði öryggi og velferð barna, starfsmanna og foreldra. Við munum vera vakin og sofin yfir þessu verkefni.“ Pétur segir fyrstu dagana í nýju starfi hafa verið góða. „Það er ótrúlega vel tekið á móti manni. Hér eru mikil gæði í öllu, hvort sem það er starfsfólk eða íbúar og það virðist vera góður gangur strax. Þetta leggst ótrúlega vel í mig, krefjandi verkefni en leggst vel í mig.“
Grindavík Börn og uppeldi Grunnskólar Leikskólar Skóla- og menntamál Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira