Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Árni Sæberg skrifar 14. júlí 2026 12:55 Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns segir að verkið sé ómetanlegt. Forstöðumaður Gerðarsafns segist hafa fengið þau svör að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum vegna niðurrifs iðnaðarbyggingar að Dugguvogi 42 í Reykjavík. Flennistór lágmynd eftir Gerði Helgadóttur prýðir vegg hússins sem snýr að Sæbraut.
Líkt og Vísir greindi frá á dögunum hefur Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, gert alvarlegar athugasemdir við boðað niðurrif hússins að Dugguvogi 42 þar sem til stendur að gera tímabundna hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma Sæbrautarstokks. Ástæðan er listaverk Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins. Rífa á húsið til að koma tímabundinni hjáleið fyrir Hin tímabundna hjáleið á Sæbraut er nú til kynningar í skipulagsgátt en til stendur að reisa Sæbrautarstokk á eins kílómetra kafla frá mislægum gatnamótum Miklubrautar og Vesturlandsvegar og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Í yfirlýsingu frá Gerðarsafni, sem send var fjölmiðlum fyrir þremur vikum sagði að safnið gerði alvarlega athugasemd við fyrirætlanir um að gerð yrði tímabundin hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma þar sem iðnaðarhúsnæðið að Dugguvogi 42 er nú til húsa. Ástæðan væri mikið menningarsögulegt gildi vegna listaverks Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins, í níu hlutum og unnin var samhliða byggingu hússins 1971 til 1972. Hefur fengið óformleg svör Brynja segir í samtali við Vísi að hún hafi enn ekki fengið formleg svör við yfirlýsingu Gerðarsafns, enda sé hápunktur sumarleyfistímans genginn í garð. Hún hafi þó fengið óformleg svör þess efnis að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum varðandi niðurrif hússins, sem hún fagnar. Hvernig það samráð muni ganga fyrir sig sé óljóst en ljóst sé að flókið yrði að bjarga verkinu ef endanleg niðurstaða verði að húsið skuli víkja. „Það þyrfti bara að skoða það, ef það verður ákveðið, hvort hægt verði að bjarga verkinu. Auðvitað vildi maður hafa verkið í þessu samhengi sem það er gert fyrir. Þannig að mér finnst það ekki alveg eiga heima bara hvar sem er. Það þarf að vera í sterku samtali við iðnaðinn og söguna.“ Á lágmyndum Gerðar á húsinu má sjá eftirmyndir hinna ýmsu varahluta og iðnaðartækja en húsið var byggt til að hýsa flutningafyrirtækið Gunnar Guðmundsson hf.
Menning Reykjavík Skipulagsmál Sæbrautarstokkur Styttur og útilistaverk Söfn Tengdar fréttir Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Safnstjóri Gerðarsafns gerir alvarlega athugasemd við niðurrif á iðnaðarhúsi að Dugguvogi 42 við Sæbraut þar sem til stendur að gera tímabundna hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma Sæbrautarstokks. Ástæðan er listaverk Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins. 24. júní 2026 12:34 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira
Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Safnstjóri Gerðarsafns gerir alvarlega athugasemd við niðurrif á iðnaðarhúsi að Dugguvogi 42 við Sæbraut þar sem til stendur að gera tímabundna hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma Sæbrautarstokks. Ástæðan er listaverk Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins. 24. júní 2026 12:34