Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 17:51 Erling Braut Haaland með þvottabjörninn sinn sem var að drekka úr vodkaflösku. NRK Norski framherjinn Erling Braut Haaland tók sín fyrstu skref á norskri grund á sérstakan hátt en norska landsliðið er nú lent heima í Noregi. Það sem bíður landsliðshetjanna er áheyrn hjá konungsfjölskyldunni og svo mikil gleði með norsku þjóðinni í miðborg Osló.
Haaland var meðal þeirra síðustu sem komu út úr norsku flugvélinni en hann hafði með sér mjög sérstakan hlut. „Hann er með þvottabjörn!“ sagði Kasper Wikestad í útsendingu norska sjónvarpsins og hló þegar hann sá myndirnar af stærstu stjörnu Noregs. Haaland var ekki bara með þvottabjörn heldur var þetta þvottabjörn sem drakk vodka. „Hann þreif jú gólfið með flestum andstæðingum sem hann fann í Bandaríkjunum, svo þvottabjörn er mjög viðeigandi,“ bætti Wikestad við en hann hefur lýst leikjum Noregs á HM í Bandaríkjunum í norska sjónvarpinu. Síðustu klukkustundirnar fyrir lendingu breytti flugið nafni sínu í gælunafnið „Ro Ro Ro Ro Airlines“ á Flightradar með beinni vísun í víkingaróður stuðningsmannanna. Nærri hundrað þúsund manns fylgdust með fluginu þegar mest var og það er búist við tugþúsundum manna í miðborg Óslóar í kvöld. Norðmenn eru skiljanlega afar stoltir af landsliði sínu og þetta gæti því orðið sumarkvöld sem mun lifa í minningunni hjá heilli þjóð í áratugi fram í tímann. Síðasta spölinn í aðfluginu var flugvélinni fylgt af tveimur F35 orrustuþotum. Erling Braut Haaland arrives back in Norway with a raccoon. pic.twitter.com/BZEqD4RfbM— Joakim 🌹🇳🇴🇪🇺 (@joakial_) July 13, 2026
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira