Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 11:30 Einhverra hluta vegna fór grein Hjartar J. Guðmundssonar frá 2. júlí fram hjá mér þar sem hann fjallaði um grein mína Fullveldi og almannaheill á þessum síðum. Þar fer Hjörtur satt að segja ansi frjálslega með það sem ég var að leggja áherslu á en það er sú staðreynd að við höfum oft sótt réttlæti til útlanda þegar íslenskir embættismenn voru búnir að dæma landa sína harðlega fyrir smæstu sakir. Hann fullyrðir einnig að með því að benda á þessar staðreyndir hafi ég verið „að reyna að rökstyðja inngöngu Íslands í Evrópusambandið” enda þótt ég minnist ekki á það einu orði. Satt að segja var ég ekki einvörðungu að tala um ESB heldur og ekki síður um aðrar erlendar stofnanir og dómstóla sem Ísland hefur haft aðgang að í gegnum tíðina. Hann kýs hins vegar að bendla allt slíkt tal við hið varasama ESB rétt eins og aðrir aðilar hafi hvergi komið við þá sögu. Í minni sveit var það aldrei talinn merkilegur málflutningur að herma eitthvað upp á menn sem þeir höfðu aldrei haldið fram og deila síðan á viðkomandi með miklu orðskrúði og tilhæfulausum fullyrðingum. Þar var talið lágmark að hafa rétt eftir öðrum enda þótt menn gætu orðið mjög ósammála. Allt í góðu með það. Hjörtur segir með réttu að Evrópuráðið (sem Ísland er aðili að) hafi ekkert með ESB að gera enda held ég því hvergi fram eins og hann gefur ranglega í skyn. Hann bendir svo á að ESB hafi lagt ríka áherslu á að Icesave-málið færi ekki fyrir dómstóla þrátt fyrir vilja íslenskra stjórnvalda að láta reyna á það þar. Fabúlerar síðan um að dómstóllinn hefði „að öllum líkindum” dæmt á annan veg en hann gerði – Íslandi í hag – ef hann hefði ekki verið bundin af fordæmi sem hann byggði úrskurðinn á. Barnar svo þessa hugsun með því að segja „ekkert réttlæti (hafi verið) í boði af hálfu Evrópusambandsins í Icesave-málinu.” Hver var að tala um það?; ekki gerði ég það í minni grein eins og gefið er í skyn með þessum orðum enda var það EFTA dómstóllinn sem sýknaði Ísland af öllum kröfum Hollands og Bretlands en ekki eitthvað vald hér innanlands eins og Hjörtur heldur ranglega fram í lokaorðum sínum. Hann heldur því jafnframt fram að langur vegur sé frá því að allt sem kemur erlendis frá sé sjálfkrafa af hinu góða. Auðvitað er það alveg rétt enda kemur það hvergi fram í mínum skrifum. En að halda hinu fram að allt sem komi frá útlöndum sé hættulegt og af hinu vonda virkar eins og pólitískur barnaskapur. Reynslan segir annað enda höfum við oft sótt réttlæti til útlanda. Hins vegar hníga, að mínum dómi, öll skynsamleg rök í þá átt að forðast þann hugsunarhátt að ekki sé einu sinni ráðlegt að skoða aðild að ESB með því að segja já í ágúst við því að sækja um aðild og sjá hvað út úr því kæmi. Þangað til treysti ég mér a.m.k. ekki til að segja já við aðild. En að fara að ráðum þeirra sem ekkert vilja um þetta tala og segja nei í ágúst væri að mínum dómi hið mesta óráð enda engu að tapa. Vitneskja er alltaf betri en ágiskanir og sleggjudómar í framhaldi af því. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar