Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar 24. ágúst 2026 09:32 Umræðurnar um atkvæðagreiðsluna á laugardaginn taka oft á sig undarlegan blæ. Vitnað er í skoðanir framliðinna á spurningum dagsins í dag og horft í spákúlu til þess að segja fyrir um óorðna hluti. Staðreyndir eru sagðar áróður og sífellt er bætt í upplýsingaóreiðuna. Flestir hafa gert upp hug sinn og sitja við sinn keip. Í heitu pottunum mælti svarinn andstæðingur aðildar eitthvað á þá leið sem fyrirsögnin segir. Samt er einn þáttur sem hefur ekki vakið mikla athygli. Hvers virði er samningaferlið sjálft? Er ferðalagið kannski enn meira virði en að ná áfangastaðnum? Nú er kominn tími á að skoða bílinn minn. Mér finnst hann frábær, besti bíll sem ég hef átt, hreinlega ekkert að honum. Samt átta ég mig á því að það er gagnlegt að fara í skoðun, því kannski kemur eitthvað í ljós sem ég hef ekki tekið eftir eða hef ekki vit á. Alltaf er gott að fá ábendingar fagmanna ef eitthvað þarf að laga. Góður bíll verður enn betri eða að minnsta kosti ekki verri eftir skoðun. Af hverju ættum við ekki að gera það sama við Ísland? Okkur finnst landið frábært og þykir vænt um það. En gæti það kannski orðið enn betra? Þann 29. ágúst greiðum við ekki atkvæði um inngöngu í Evrópusambandið. Atkvæðagreiðslan snýst um það hvort við eigum að taka upp viðræður að nýju. Að þeim loknum liggur fyrir hvaða samningum Ísland hefur náð og þá verður tekin ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við verðum fullgildir félagar. Fram að þessu hefur mest verið talað um áfangana tvo: Þann fyrsta 29. ágúst og svo atkvæðagreiðslu um samning eftir eitt til tvö ár. Sumir segja að ekkert sé um að semja, en aðrir telja að sveigjanleiki sé nægur. Um eitt ættum við þó að geta verið sammála. Í samningunum verður skoðað vel hvernig staða mála í hinum ýmsu málaflokkum er á Íslandi. Samningaferlið sjálft gæti orðið besta heilbrigðispróf sem íslenska samfélagið hefur farið í. Í aðildarviðræðum er farið yfir landið málaflokk fyrir málaflokk. Ekki í almennum pólitískum frösum heldur niður í saumana. Löggjöf, framkvæmd, stofnanir og reglur eru bornar saman við það sem tíðkast annars staðar í Evrópu. Hvar er skortur á samkeppni? Hvers vegna kostar flest miklu meira á Íslandi en annars staðar í Evrópu? Hvers vegna blýhúðum við evrópskar reglur? Hvernig stöndum við í landbúnaði, sjávarútvegi, orkumálum, skattamálum, opinberum innkaupum og byggðamálum miðað við nágrannalöndin? Máltækið segir: Svo má illu venjast að gott þyki. Við venjumst því að húsnæði sé dýrt. Við venjumst háum vöxtum. Við venjumst fákeppni á ýmsum mörkuðum. Við venjumst því að opinber verkefni taki lengri tíma og kosti meira en ætlað var. Auðvitað erum við innst inni ekki ánægð með neitt af þessu og þeir sem ætla að segja Nei! spyrja: Hvers vegna lögum við þetta ekki sjálf. Svarið er að við Íslendingar, ekki síst íslenskir stjórnmálamenn, ýtum málunum á undan okkur og hættum að sjá hvað er að. Margt höfum við fært til betri vegar tilneydd af alþjóðlegu samstarfi. Þarna gætu samningaviðræður orðið gagnlegar. Jafnvel þótt þær leiði ekki til inngöngu munu þær kortleggja íslenskt samfélag, ekki síst það sem betur má fara. Það getum við nýtt okkur, hvernig sem fer. Það má alveg stela góðum hugmyndum. Glöggt er gests augað. Slíkur samanburður gæti varpað skýrara ljósi á kerfislæga veikleika sem auðvelt er að venjast innanlands, svo sem: Miklar aðgangshindranir og takmarkaða samkeppni á ákveðnum mörkuðum Flókið regluverk sem ver starfandi fyrirtæki fyrir nýrri samkeppni Mikinn kostnað við húsnæði, innflutning og ýmsa grunnþjónustu Sveiflur í efnahagslífi, verðbólgu og fjármögnunarkostnaði Takmarkaða stærðarhagkvæmni og fákeppni Veikleika í langtímastefnumótun, stjórnsýslu og framkvæmd opinberra verkefna Ísland er þegar á innri markaði Evrópu í gegnum EES. Við tökum upp stóran hluta reglnanna en höfum takmarkaða aðkomu að því þegar þær verða til. Samningaferlið myndi meðal annars leiða í ljós hvort við gætum fengið meira út úr fullri aðild. Jafnvel þótt niðurstaðan verði sú eftir vandlega skoðun að ekki sé um neitt að semja eða við náum ekki okkar markmiðum fram, ættum við þessa greiningu. Við gætum lagað það sem okkur líst á og hafnað hinu. Þess vegna er undarlegt að tala um samningaviðræður eins og þær séu gildra sem við megum alls ekki stíga inn í. Viðræðurnar snúast ekki bara um að verða fullgildir félagar. Þær eru líka greining. Tugir þúsunda Íslendinga velja að búa erlendis, vel menntaðir og verðmætir einstaklingar. Hvers vegna? Myndu einhverjir þeirra snúa aftur ef við lögum það sem betur má fara? Spurningin 29. ágúst er ósköp einföld: Erum við virkilega svo ánægð með íslenska kerfið að við viljum ekki einu sinni láta skoða það? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt Jóhannesson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar