Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Stefán Árni Pálsson skrifar 7. júlí 2026 11:30 Birkir Már hefur trú á norska liðinu. vísir/sigurjón Sannkölluð þjóðhátíð ríkir nú í Noregi eftir að þjóðin sló út Brasilíu í 16-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu. Fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu lék í sex ár sem atvinnumaður í Brann og er því mikill stuðningsmaður Noregs á mótinu.
Birkir Már Sævarsson var á mála hjá Brann frá árinu 2008-2014. Birkir hefur fylgst vel með gangi mála vestanhafs síðustu vikur og einnig hvernig stemningin í Noregi er. „Mér sýnist það vera bara svipað kannski og var hérna 2016 og 2018, nema kannski á aðeins stærri skala bara af því að það er bara meira fólk og þeir eru bara einhvern veginn að missa sig,“ segir Birkir í sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. Norðmenn hafa verið með vel mannað lið undanfarin ár en eru nú fyrst að ná góðum árangri, í fyrsta sinn síðan á HM 1998. Hágæðaleikmenn „Það er kannski erfitt að segja nákvæmlega hvað er að smella. Þetta er náttúrulega bara lið sem er búið að spila lengi saman og menn búnir að valda smá vonbrigðum á upphafsárum landsliðsferilsins hjá sér. En núna einhvern veginn er þetta bara að smella. Þeir eru bara orðnir vel drillaðir, með góðan þjálfara og hágæðaleikmenn í flestum stöðum. Þetta er svona kannski svipað og hjá okkur fyrir nokkrum árum, það eru margir leikmenn á sama aldri að koma á sama tíma sem allir eru bara ótrúlega gæðamiklir leikmenn,“ segir Birkir sem sjálfur fór á stórmót með íslenska landsliðinu árin 2016 og 2018. @foxsoccer Fans in Oslo have taken to the streets to celebrate Norway advancing to the Quarterfinals for the first time ever 🇳🇴 (via x/MundoEConflicto) #fifaworldcup #oslo #norway #brazil ♬ original sound - FOXSoccer Fjölskyldan bjó í Noregi í sex ár og hefur hún töluverða tengingu við landið. „Þetta er náttúrulega okkar lið á hérna mótinu og maður var með Norðmennina sem lið sem maður hugsaði að gæti unnið en núna er þetta farið að líta vel út,“ segir Birkir en synir hans eru farnir að róa í takti við landsliðsmenn Noregs heima í stofu. Hann segir að Norðmenn trúi því að liðið geti farið alla leið og orðið heimsmeistarar. Norðmenn mæta Englendingum í 8-liða úrslitum á laugardaginn. „Þeir eru náttúrulega komnir í hæstu hæðir og þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar til liðsins síns eins og bara eðlilegt er þegar svona gerist. En þeir eru með framherja sem þarf ekki að fá boltann nema tuttugu sinnum í leik og hann skorar samt þrennu. Það er gulls ígildi í boltanum í dag.“
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira