„Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar 1. júlí 2026 07:15 Þetta einfalda samsetta orð. Orð sem ég hef séð og heyrt ótal sinnum án þess að átta mig á því hvað það ber í skauti sér í raun og veru. Að átta sig á því að baki þessu orði eru tugir, hundruð, ef ekki þúsundir, kvalinna og veikra Íslendinga sem hafa verið sviptir eðlilegu lífsmynstri og eiga enga lækningu í vændum næstu mánuðina eða árin. Afleiðingin er fólk sem getur ekki notið lífsins, getur ekki stundað vinnuna sína og jafnvel ekki framkvæmt venjulegar daglegar athafnir. Fólk sem á enga aðra kosti í stöðunni en að taka lyf og verkjatöflur með tilheyrandi aukaverkunum. Fjölskyldur og ástvinir sem þjást við að horfa upp á kvalir og vanlíðan ástvina sinna. Lausnin er til staðar Á sama tíma heyrir maður forstjóra Sjúkratrygginga halda því fram að ástandið sé nú ekki svo slæmt og að allt sé á góðri leið, að biðtíminn sé að minnka, biðlistarnir að styttast og að unnið sé að samningum við einkaaðila sem eru í raun þeir einu sem geta unnið á biðlistum. Samt veit maður betur. Fullkomin aðstaða, búin nýjustu og bestu lækningatækjum, stendur auð og okkar færustu sérfræðingar eru verkefnalausir. Sjúkratryggingar láta ekki einu sinni svo lítið að svara bréfum og fyrirspurnum. Á sama tíma er Landspítalinn yfirfullur, með langa biðlista og sérfræðinga, lækna og hjúkrunarfólk á barmi bugunar vegna álags. Biðlistinn lengist Á hverju ári eru um 300 manns sem þurfa á brjósklos- og öðrum baktengdum aðgerðum að halda, en einungis er úthlutað fjármagni fyrir 100 aðgerðir sem á svo að dreifa yfir árið. Þá eru einungis eftir um 200 manns á biðlistanum fyrir næsta ár. Það að fjársvelta kerfið með þessum hætti mun hafa í för með sér enn meiri kostnað sem birtist í alls konar myndum: andlegu og líkamlegu álagi, örorku og ófyrirséðum skaða. Hvað mynduð þið gera? Undirrituð er ein af þeim sem bíða. Ég hef greitt mína skatta og skyldur í meira en hálfa öld og taldi mig eiga vel inni fyrir þessari þjónustu. En nei, því einn af flokkum í hagræðingartillögum ríkisstjórnarinnar er „heilbrigðisþjónusta og lyf“. Þú verður bara að bíta á jaxlinn í eitt ár í viðbót og þrauka áfram á biðlista. Nema fyrir þau sem eru svo heppin að geta greitt vel á aðra milljón til að komast í aðgerð án þátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Þetta er staðan. Svo ég spyr ráðamenn: Hvað myndir þú gera ef móðir þín þyrfti nauðsynlega á aðgerð að halda og væri á þessum biðlista? Höfundur er grunnskólakennari á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjúkratryggingar Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar