Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júní 2026 23:34 Maðurinn bjó til falskan aðgang í nafni konunnar og sagðist vilja upplifa „nauðgunarfantasíu“. Vísir/EPA Breskur karlmaður hefur verið vistaður í fangelsi fyrir að hafa búið til Tinder-aðgang í nafni fyrrverandi kærustu sinnar og boðið ókunnugum karlmönnum heim til hennar.
Asad Hussain, búsettur nærri Manchester í Bretlandi, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að sitja um konu sem olli henni alvarlegum ótta, líkamsárás og fyrir að hafa ekki farið að fyrirmælum lögreglu. Hussain og konan hittust fyrst í apríl 2024 og notaði hann falska nafnið Mick Renney. Að sögn lögreglunnar í Cheshire fóru þau á nokkur stefnumót en Hussain varð sífellt stjórnsamari. Hún sleit sambandinu eftir að hún komst að því að hann hefði tekið síma hennar og lesið skilaboð. Þá elti Hussain hana inn á baðherbergi og bannaði henni að nota símann án þess að hann sjálfur væri viðstaddur. Konan hafi reynt að loka dyrunum en hann ýtt henni og fellt. Í kjölfar sambandsslitanna sendi Hussain skilaboð á dóttur konunnar og sakaði hana um framhjáhald. Nei þýddi að „hún vildi það meira“ Í júlí það sama ár byrjuðu ókunnugir menn að mæta heim til konunnar og sögðu þeir að þeir hefðu rætt við hana á stefnumótaforritinu Tinder og hún boðið þeim heim. Í raun hafði Hussain búið til aðgang undir hennar nafni, spjallað við karlmenn og sagt þeim að hana dreymdi um að taka þátt í svokallaðri „nauðgunarfantasíu“. Þá sagði Hussian mönnunum, í nafni konunnar, að þeir ættu að koma heim til hennar. Ef hún segði nei þýddi það að „hún vildi það meira“. Að minnsta kosti átján menn komu að heimili konunnar. Konan tilkynnti Hussain til lögreglu en hún taldi hann enn heita Mick Renney. Það var ekki fyrr en lögreglan komst yfir bílnúmeraplötu hans að þeir komust að því hvað hann hét í raun. Hussain var handtekinn þann 6. október. Sat í þriggja kílómetra fjarlægð „Enginn hefur rétt til að láta mér líða óöruggri á mínu eigin heimili bara af því að ég vil ekki vera lengur í sambandi með honum,“ sagði í yfirlýsingu konunnar sem lesin var fyrir dómi. „Nei á að þýða nei. Núna velti ég fyrir mér hversu margir menn hafa heimilisfangið mitt og trúa því að ég vilji verða fyrir kynferðislegri árás, eða þaðan af verra.“ Hussain neitaði öllum sökum en lá fyrir dómnum að tæki sem hann notaði hefði verið notað til að stofna Tinder-aðganginn. Í ljós kom að í hvert skipti sem reikningarnir voru virkir hafði hann setið um þremur kílómetrum frá heimili konunnar tímunum saman og sent skilaboð. „Þetta hefur verið eitt flóknasta og óhugnanlegasta eltihrellismál sem lögreglan í Cheshire hefur nokkru sinni rannsakað,“ sagði Keith Terrill, rannsóknarlögreglumaður, eftir dómsuppkvaðninguna. „Það hefur hins vegar enn og aftur sýnt að internetið veitir þeim sem vilja beita konur og stúlkur ofbeldi og heimilisofbeldi ekkert skjól.“
Stefnumótaforrit Dómsmál Bretland England Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira