Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar 29. júní 2026 10:30 Skapað með landstuldi, þjóðernishreinsunum og þjóðarmorði Með aðgerðaleysi sínu hafa Ríkisstjórnir Vesturlanda tekið þá pólitísku ákvörðun að fórna palestínsku þjóðinni á altari síonismans. Um leið taka þær þátt í að grafa undan því alþjóðlega réttarkerfi sem þjóðir heims reiða sig á. Ekki síst þær smærri. Ísrael sækir að nágrönnum sínum með fullkomnustu hertólum, rænir landi og myrðir. Stjórnmálamenn í Ísrael lýsa því yfir hver um annan þveran að þeir ætli ekki að draga herinn til baka. Þeir ætla ekki að yfirgefa Gaza, Vesturbakkann, suðurhluta Líbanon eða Sýrland. Itamar Ben-Gvir, ráðherra í ríkisstjórn Ísraels, lýsti því yfir að hann væri „stoltur af eyðileggingu Gaza“ og að „fyrir hvert tár sem ísraelsk móðir fellir, ættu þúsund líbanskar mæður að gráta. Allt Líbanon ætti að brenna.“ Það þarf varla að taka það fram að ísraelskar mæður eru að gráta fallna dætur og syni, hermennina sem voru sendir til Gaza og Líbanon til að myrða fólk, þ.á.m. yfir 20.000 börn. May Golan, ráðherra jafnréttismála í ríkisstjórn Ísraels, sagði: „Ég er persónulega stolt af rústunum á Gaza og að hvert einasta barn, jafnvel eftir 80 ár, muni segja barnabörnum sínum frá því hvað gyðingarnir gerðu.“ Yfirlýsingar og gjörðir ráðamanna í Ísrael sýna að þar fer fólk statt utan allra siðferðilegra marka. Síonistar segjast starfa í nafni allra gyðinga, en sívaxandi fjöldi gyðinga í Bandaríkjunum og víðar afneitar síonismanum og berst gegn glæpum Ísraelsríkis með kjörorðunum „ekki í okkar nafni!“ Hugmyndin um Stór-Ísrael hefur verið á dagskrá síonista allt frá stofnun Ísraelsríkis árið 1948 þegar 750.000 Palestínumenn voru hraktir í útlegð og heimili þeirra annað hvort jöfnuð við jörðu eða afhent gyðingum sem flúið höfðu eigið þjóðarmorð í Evrópu. Ísraelsríki stal landi palestínskra fjölskyldna og flestum eigum þeirra og engar bætur greiddar. Hugmyndir síonista um stórveldi sitt ná yfir alla Palestínu og Jórdaníu auk stórra landsvæða í öðrum nágrannaríkjum. Þessa stefnu þekkir heimurinn því miður frá tíð nasismans. Hún gekk þá undir heitinu Lebensraum! Kannanir sýna ítrekað að meirihluti síonískra íbúa Ísraels styður þjóðarmorð, þjóðernishreinsanir og landrán. Helför gyðinga af hendi Evrópubúa er gjarnan notuð sem réttlæting fyrir þessari afstöðu, á meðan aldalöng friðsamleg sambúð gyðinga, múslima og kristinna í landinu helga fram að stofnun Ísraelsríkis er virt að vettugi. Í munni lítilsigldra vestrænna ráðamanna verður kjarnastefna síonismans að slagorðinu „Ísrael hefur rétt til að verja sig.“ Svo lengi sem vestræn stjórnvöld styðja Ísrael með vopnum og pólitísku skjóli verða Palestínubúar áfram myrtir og landi þeirra rænt - því síonisminn er nýlendustefna. Refsiaðgerðir gegn Ísrael fyrir brot á alþjóðalögum, brotum gegn Sáttmála gegn þjóðarmorði, brotum á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru engar. Vesturlönd vörpuðu glæpum nasista gegn gyðingum á Palestínumenn sem áttu enga sök á gyðingaofsóknum Evrópubúa. Frá stofnun Ísraels hafa Palestínumenn greitt skuld Vesturlanda með eigin blóði og landi. Skuld Íslands og annarra Vesturlanda gagnvart palestínsku þjóðinni er löngu komin á gjalddaga! Helförin verður aldrei skálkaskjól fyrir þá sem fremja þjóðarmorð. Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína og höfundur bókarinnar Íslandsstræti í Jerúsalem. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar