Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 28. júní 2026 07:02 Margt áhugavert er að finna í gögnum tengdum misheppnaðri umsókn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um inngöngu í Evrópusambandið frá árinu 2009. Það er að segja þeim gögnum sem núverandi ríkisstjórn hefur ekki læst inni í leyniherbergi sem aðeins alþingismenn hafa aðgang að en mega ekki upp upplýsa þjóðina um. Þar kemur meðal annars fram að innganga í sambandið kallaði á mikla „stofnanauppbyggingu“ hér á landi samhliða viðræðum í þeim efnum, það er að segja útþenslu hins opinbera, til þess að landið gæti staðið undir þeim skuldbindingum sem fylgdu því að vera innan þess. Vert er að hafa þetta í huga þegar því er haldið fram að innganga í Evrópusambandið myndi ekki þýða umfangsmeiri stjórnsýslu hér á landi. Eins og af Halldóri Jörgen Olesen í grein á Vísi á dögunum þar sem hann hafnaði því meðal annars að fjölga þyrfti starfsmönnum ráðuneytanna kæmi til hennar. Til dæmis er smæð íslenzku stjórnsýslunnar að áliti sambandsins til umfjöllunar í skjali á vegum þess frá árinu 2011 sem nefnist „Commission decision of 08.04.2011 on a Multi-annual Indicative Planning Document (MIPD) 2011-2013 for Iceland“ og unnið var í kjölfar úttektar sambandsins á stjórnsýslunni. „Heilt á litið er [íslenzka] stjórnsýslan lítil og býr við takmarkaðar fjárveitingar. Verulegur niðurskurður á opinberum útgjöldum hefur enn fremur átt sér stað til þess að takast á við fjárhagserfiðleikana í kjölfar efnahagskrísunnar árið 2008. Niðurskurðurinn hefur dregið enn frekar úr getu stjórnsýslu Íslands til þess að sinna undirbúningi fyrir inngöngu í Evrópusambandið sem þó var takmörkuð að stærð fyrir,“ segir þannig í skjalinu og leynir sér ekki það sjónarmið sambandsins að stjórnsýslan hér á landi sé engan veginn í stakk búin til að ráða við það sem fylgir því að ganga í það. Fram kemur einnig í skjalinu að Ísland muni þurfa „að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf sambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan þess gerir kröfu um. […] Stjórnsýsla Íslands er lítil. Hjá stjórnarráðinu starfa um 700 opinberir starfsmenn og það samanstendur af tíu ráðuneytum. […] Ráðuneytin eru lítil og hafa á bilinu 26 til 214 starfsmenn. Að meðaltali 58 starfsmenn.“ Vert er að geta þess að stjórnarráðið er í dag ekki mikið fjölmennara en þá. Þá er rétt að árétta það að hér er á ferðinni mat Evrópusambandsins sjálfs. Vitanlega þarf þetta ekki að koma á óvart enda stjórnsýsla Evrópusambandsins miðuð við milljóna- og tugmilljónaþjóðir. Það er rétt hjá Halldóri að vegna EES-samningsins tekur Ísland upp megnið af regluverki sambandsins um innri markað þess. En ekki af öllu regluverki þess eins og gjarnan hefur ranglega verið haldið fram af Evrópusambandssinnum. Miðað við síðustu úttekt utanríkisráðuneytisins var hlutfallið 13,4% árið 2016 og miðað við þróunin fram að því kann það að vera eitthvað yfir 20% í dag. Innan Evrópusambandsins væri hins vegar allt regluverk sambandsins eins og það leggði sig undir. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar