Viðskipti innlent

Verð­bólga eykst lítil­lega

Kjartan Kjartansson skrifar
Verðlag hækkaði um 0,94% á milli mánaða í júní.
Verðlag hækkaði um 0,94% á milli mánaða í júní. Vísir/Viktor

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94 prósent á milli mánaða. Ársverðbólga mælist nú 5,2 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 552,2 stig og hækkar um 1,08% frá maí 2026.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,6% (áhrif á vísitöluna 0,13%), flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 20,1% (0,52%) og gistiþjónusta hækkaði um 17,5% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2026, sem er 690,7 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2026.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×