Viðskipti innlent

Setja 630 milljónir í að markaðs­setja Ís­land sem á­fanga­stað

Lovísa Arnardóttir skrifar
Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undirrituðu samninginn við Reykjavíkurhöfn.
Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undirrituðu samninginn við Reykjavíkurhöfn. Stjórnarráðið

Stjórnvöld leggja samkvæmt nýjum samningi 630 milljónir í nýtt samstarfsverkefni um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu undirrituðu samninginn, sem er til eins árs, í dag. Í tilkynningu kemur fram að fulltrúar atvinnuvegaráðherra, Íslandsstofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og áfangastaðastofa landshlutanna muni skipa verkefnisstjórn um framkvæmd samningsins.

Í tilkynningu er vísað til þess að í nýrri aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands komi fram að innan atvinnuvegaráðuneytisins verði unnið að heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Markmiðið með því verði að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna. Niðurstaða þeirrar vinnu verður samkvæmt tilkynningu kynnt næsta vetur sem fyrsti liður þess að gera langtímaáætlun fyrir viðvarandi neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.

„Ferðaþjónustan hefur lengi kallað eftir því að farið sé í viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað í stað þess að vera í tímabundnum markaðsátökum. Þessi samningur er fyrsta skrefið á þeirri vegferð,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningu.

Hún segir það skipta miklu máli fyrir íslenska ferðaþjónustu að gera þetta með þessum hætti.

„Þetta styður auðvitað við þá öflugu markaðssetningu sem ferðaþjónustufyrirtækin sjálf standa fyrir. Markmiðið með viðvarandi markaðssetningu er ekki síst að draga úr árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.“

Samkeppnin veruleg

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir útflutningstekjur af ferðaþjónustu skipta miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi.

„Samkeppnin um ferðamenn hefur sjaldan verið meiri en í dag. Við viljum hafa áhrif á þróun greinarinnar, sækja fram gagnvart réttum markhópum á okkar verðmætustu mörkuðum og vinna gegn árstíðasveiflu. Þannig náum við að hámarka þann ávinning sem íslenskt samfélag í heild hefur af þessari mikilvægu atvinnugrein,“ segir Pétur Þ. Óskarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×