Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Atli Ísleifsson skrifar 28. júní 2026 20:31 Mannvirkin sem um ræðir eru tækjageymsla, byggð árið 1981, og svo flugstöð, byggð árið 1973. Fjallabyggð Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tilboð ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Heliskiing í fasteignir sveitarfélagsins á flugvallarsvæðinu á Siglufirði. Tilboðið hljóðar upp á tólf milljónir króna en um er að ræða tækjahús og gömlu flugstöðina.
Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar á dögunum. Bæjarráð hafði áður tekið fyrir tólf milljóna króna tilboð Viking Heliskiing ehf. í eignirnar, en það var með tilteknum fyrirvörum sem ekki komu fram í nýja tilboðinu sem var samþykkt. Í fundargerð kemur fram að fyrirvari hafi verið á kaupum um að ytra byrði húsanna væri í góðu lagi við afhendingu, það er að þau myndu halda vatni og vindum og að engir lekar væru inni í húsinu og engin mygluvandamál. Ef leki eða mygla hefði komið í ljós myndu viðgerðir á því dragast frá afsalsgreiðslu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar sætti sig ekki við þessa fyrirvara og varð því ekki af kaupsamningi. Viking Heliskiing lagði þá fram nýtt kauptilboð upp á tólf milljónir króna en án fyrirvara. Þórir Hákonarson, starfandi bæjarstjóri, segir í samtali við fréttastofu vera ljóst að mannvirkin séu ekki vel á sig komin. Það sé undir nýjum eigendum komið hvað verði gert við húsin. Mannvirkin sem um ræðir eru tækjageymsla, byggð árið 1981, sem er 115,7 fermetrar að stærð og svo flugstöð, byggð árið 1973, sem er 121,6 fermetrar að stærð. Á flugvellinum er einnig að finna flugskýli sem er í einkaeigu. Flugvöllurinn sjálfur og flugbrautin eru áfram í eigu Fjallabyggðar.
Fjallabyggð Flug Ferðaþjónusta Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira