Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Áróra L Davíðsdóttir og Sigurgeir Þorkelsson skrifa 17. júní 2026 18:54 Guðni Th. Jóhannesson, forveri Höllu í embætti forseta, lagði til í kveðjuávarpi sínu til Alþingis að forseti tæki við flutningi hátíðarávarpsins af forsætisráðherra. Sú ósk hans gengur nú eftir annað árið í röð. Vísir/Lýður Lýðveldi Íslands er áttatíu og tveggja ára í dag og af því tilefni var blásið til hátíðarhalda víða um land og þar á meðal í Miðborg Reykjavíkur.
Dagskráin hófst í morgun á hátíðarstund lýðveldisins á Austurvelli. Þar flutti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hátíðarávarp, annað árið í röð. Halla hafði meðal annars orð á því að styrkleikar Íslendinga væru mikilvægir á tímum átaka, umbreytinga og óvissu og að fram undan væru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands í hátíðarávarpi á Austurvelli.Vísir/Lýður Söng- og leikkonan Elín Hall var valin Fjallkonan í Reykjavík í ár. Að vanda hvíldi mikil leynd yfir því hver myndi fara með hlutverk fjallkonunnar þar til hún gengi út úr Alþingishúsinu klædd skautbúningnum. „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin.“ Svona hófst ávarpið eftir Braga Valdimar Skúlason sem Elín Hall flutti á Austurvelli í morgun.Vísir/Lýður Félagar úr Karlakór Rekjavíkur sungu við athöfnina. Ásamt þjóðsöngnum eru ávallt flutt kvæðin Hver á sér fegra föðurland, eftir skáldkonuna Huldu við lag Emils Thoroddsen, og Yfir voru ættarlandi, kvæði Steingríms Thorsteinsson sem Sigfús Einarsson samdi lag við. Vísir/Lýður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra Íslands. Vísir/Lýður Hildur Björnsdóttir, til hægri, er nýr borgarstjóri Reykjavíkur. Síðar um daginn veitti hún viðurkenningu til borgarlistamanns Reykjavíkur árið 2026, Arnhildar Pálmadóttur arkitekts. Til vinstri er Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar.Vísir/Lýður Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti prúðbúin. Í bakgrunni má sjá Ólaf Adolfsson, oddvita flokksins í norðvesturkjördæmi. Vísir/Lýður Skrúðganga var leidd af skátum frá Austurvelli upp Suðurgötu, að Hólavallakikjugarði Vísir/Lýður Björg Magnúdóttir, forseti borgarstjórnar, lagði blómsveig frá Reykvíkingum Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans.Vísir/Lýður Veður var með stilltasta móti þó sólin væri örlítið feimin.Vísir/Lýður Samkvæmt hefð leggja nýstúdentar blómsveig við styttu Jóns Sigurðssonar.Vísir/Lýður Gestir mættu prúðbúnir til hátíðarstundar á Austurvelli í morgun. Vísir/Lýður
17. júní Reykjavík Alþingi Borgarstjórn Forseti Íslands Samkvæmislífið Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Sjá meira