„Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Árni Sæberg skrifar 16. júní 2026 15:19 Ming Ting við komuna í Héraðsdóm Reykjavíkur á föstudag. Vísir/Vilhelm Geðlæknir sem vann geðmat á Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að hafa myrt dóttur sína í félagi við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, segir Ming Ting ekki þjást af geðsjúkdómi, hvorki fyrir né eftir atburðina á hótelinu.
Geðlæknirinn var meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómi þegar aðalmeðferð málsins hélt áfram í dag. Á föstudag var tekin ógnarlöng skýrsla af Ming Ting sjálfri en lesa má um hana í fréttinni hér að neðan: Geðlæknirinn kom fyrir dóminn eftir að hafa gert geðmat á Ming Ting sem dómkvaddur matsmaður. Hann sagði að niðurstaða geðmatsins hafi í stuttu máli verið að Ming Ting glími ekki við neina geðræna erfiðleika. Spurður að því hvort Ming Ting sé sakhæf sagði geðlæknirinn að slíkt mat væri lögfræðilegs eðlis en að hans mati væri ekkert sem benti til þess að refsing gæti ekki borið árangur. Hefi ekki verið undir hælnum á eiginmanninum Geðlæknirinn sagðist hafa rætt þrívegis við Ming Ting, í júlí, ágúst og október í fyrra. Meðal þess sem þau hafi rætt væri hvort mögulegt væri að Ming Ting hefði verið undir hælnum á eiginmanni sínum og hann hefði neytt hana til þess að myrða dóttur þeirra og svo sjálfa sig í kjölfarið. Hún hefði sagt að samband þeirra hefði verið á jafningjagrundvelli og hann hefði ekki getað neytt hana til að gera nokkurn skapaðan hlut. Bauðst til að lifa áfram og styðja dótturina Þá sagði geðlæknirinn að Ming Ting hefði sagt að dóttir þeirra hefði sjálf ákveðið að láta lífið samhliða foreldrum sínum. Eiginmaður hennar hefði verið veikur og ekki viljað lifa lengur og hún hefði ekki viljað lifa án hans. Hún hefði þó boðið dóttur þeirra að lifa áfram til þess að styðja hana en hún afþakkað það boð og frekar sagst vilja láta lífið með þeim. Þá hefði hún einnig afþakkað að lifa foreldra sína en fá stuðning frá frænku sinni.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, hefst á nú klukkan 14. Færri vitni komust að en vildu þegar aðalmeðferð hófst á föstudag og því koma meðal annars lögreglumenn og geðlæknir fyrir dóm í dag. 16. júní 2026 13:29 Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, er mætt í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún gerði enga tilraun til að hylja sig þegar hún gekk inn. 12. júní 2026 09:37 Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira
Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, hefst á nú klukkan 14. Færri vitni komust að en vildu þegar aðalmeðferð hófst á föstudag og því koma meðal annars lögreglumenn og geðlæknir fyrir dóm í dag. 16. júní 2026 13:29
Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, er mætt í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún gerði enga tilraun til að hylja sig þegar hún gekk inn. 12. júní 2026 09:37